P2: Við búum í hermiveröld (e. simulation) og raunveruleiki okkar er sýndarveruleiki | Hluti 2
Hvað ef veruleikinn er ekki raunverulegur og við sitjum föst í meingallaðir hermiveröld? Í þessum síðari þætti
Álhattsins um hermiveröldina og sýndarveruleikann kafa strákarnir enn dýpra ofan í kanínuholuna og draga fram stórfurðuleg og fremur ótrúleg dæmi sem virðast benda til þess að kóðinn sjálfur sé farinn að hiksta.
Eins Brady Feigl og Brady Feigl, hafnabolta mennirnir tveir með sama nafn og sama útlit sem fóru meiraðsegja í sömu skurðaðgerð hjá sama lækni án þess að vera skildir eða tengjast á nokkurn hátt.
Eða sagan sem sögð er í Three Identical Strangers, þar sem þrír ókunnugir menn sem þykja furðulega líkir komast að því að þeir eru þríburar. Svo er það Laura Buxton sem sleppti blöðru sem endaði í höndum annarrar tíu ára stúlku með sama nafn. Tilviljun? Eða villa í gagnagrunni alheimsins?
Tsutomu Yamaguchi, maðurinn sem lifði af bæði Hiroshima og Nagasaki. Ótrúleg tilviljun eða bara óvenjulega óheppinn gæi. Galli í forrituninni? Svo eru það ótrúleg líkindi með morðunum á Abraham Lincoln og Henry Ford. Dæmin úr sögunni eru mýmörg og hvert öðru ótrúlegra og furðulegra.
Erum við frjálsar manneskjur í raunveruleikanum eða forrit í buggy tölvuleik sem enginn er lengur að viðhalda? Í þessum seinni hluta hermiveröldarþáttarins fara Guðjón, Haukur og Ómar í gegnum frægustu tilvikin og vega og meta hvort þau séu bara tilviljanir eða sönnun þess að við búum í illa forrituðum sýndarveruleika og hermiveröld.
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Fleiri þættir af Álhatturinn
- Artemis II tunglverkefnið var sviðsett11. september 2026
- P1: Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum | Hluti 111. september 2026
- Til er lækning við krabbameini sem haldið er frá almenningi11. september 2026
- Loch Ness skrímslið (stundum kallað Nessie) er til11. september 2026
- Tartaria var háþróuð siðmenning sem skrifuð hefur verið úr sögubókum og falin fyrir mannkyninu11. september 2026
- Bandaríkin leyfðu árásinni á Pearl Harbor að gerast til að hafa ástæðu til að taka þátt í seinni heimstyrjöldinni11. september 2026
