P2: Pizzagate: Comet Ping Pong Pizza og eigandi þess, James Alefantis, er viðriðinn barnamansalshring fyrir elítuna | Hluti 2
Í þessum síðari hluta Álhattarins, um hið umdeilda en áhugaverða mál, Pizzagate kafa þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór enn dýpra ofan í kanínuholuna í leit að einhverskonar sannleika eða í það minnsta áhugaverðri umræðu.
Þeir skoða undarlegar og tvíræðar færslur og ummæli James Alefantis, eiganda Comet Ping Pong, á samfélagsmiðlum, sem þykja í besta falli vafasamar ef ekki hreint út sagt ógeðfeldar.
Elijah Wood, Corey Feldman og aðrar barnastjörnur og upplifun þeirra í Hollywood berast í tal auk þess er Álhatturinn kemst að því að Alefantis á og rekur einnig Borðtennis Pizzastaði í fleiri löndum, sem gætu mögulega hafa tekið við hlutverki Comet Ping Pong í barnaníðinu, eftir að upp komst um staðinn í Washington.
Þetta og svo margt margt fleira áhugavert og undarlegt í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór halda áfram að kryfja hina umdeildu en jafnframt allt áhugaverðu kenningu sem kennd hefur verið við Pizzagate.
Er um stórhættulega upplýsingaóreiðu sem getur ógnað lýðræðinu og vitsmunalegri umræðu að ræða, líkt og stóru meginsstraumsmiðlarnir vilja meina? Eða er eitthvað gruggt í vatninu í Washington og James Alefantis er að baka pizzur með óhreint mjöl í pokahorninu?
HLEKKIR Á ÍTAREFNI
Dr. Phil Kendall Trafficking Full Episode
#PizzaGate Everything You Need To Know About
PIZZAGATE/PEDOGATE
The PIZZAGATE Evidence You Will NEVER See In The Mainstream Media
'PIZZAGATE KILL ROOM DISCOVERED @ PEGASUS MUSEUM! OWNED BY JAMES ALEFANTIS' - 2017
Pizzeria owner targeted by fake news stories speaks out
Actor Corey Feldman Exposes Pedophile Hollywood Elite
Elijah Wood Says There is a 'Major' Pedophilia Problem in Hollywood
Going undercover to catch a serial paedophile | 60 Minutes Australia
MARINA ABRAMOVIC SPIRIT COOKING
monica-peterson-who-traveled-to-haiti-to-investigate-sex-trafficking-was-suicided-when-she-linked-the-clinton-foundation-caracol-industrial-complex/
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Fleiri þættir af Álhatturinn
- Artemis II tunglverkefnið var sviðsett11. september 2026
- P1: Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum | Hluti 111. september 2026
- Til er lækning við krabbameini sem haldið er frá almenningi11. september 2026
- Loch Ness skrímslið (stundum kallað Nessie) er til11. september 2026
- Tartaria var háþróuð siðmenning sem skrifuð hefur verið úr sögubókum og falin fyrir mannkyninu11. september 2026
- Bandaríkin leyfðu árásinni á Pearl Harbor að gerast til að hafa ástæðu til að taka þátt í seinni heimstyrjöldinni11. september 2026
