P Diddy er Jeffrey Epstein Hip Hop heimsins
Sean Love Combs, betur þekktur sem Puff Daddy eða P. Diddy hefur verið ein skærasta stjarna tónlistar og menningargeirans vestanhafs undanfarna áratugi. Hann hefur unnið með fjöldanum öllum af stórstjörnum eftir að hafa stigið fram á sjónarsviðið á 10.áratugu síðustu aldar.
Undanfarnar vikur og mánuði hafa komið fram fjöldin allur af frásögnum frá fólki sem segir farir sínar hreint ekki sléttar af samskiptum sínum við Didday og hafa þó nokkrir aðilar lýst því hvernig Diddy misnotaði þau kynferðislega.
Aðrir hafa lýst dýrslegum og svæsnum kynsvöllum heima hjá Diddy og djöfullegum partíum sem gengu langt út fyrir öll velsæmismörk jafnvel hörðustu glæpamanna. Allt saman var þetta svo tekið upp á myndavélar sem hafði verið komið fyrir í hverjum króka og kima í risa stórri höll Diddy. Tugir ef ekki hundruðir myndavéla og myndbandsupptökur fundust við húsleit á heimili Diddy og mögulegt er að hann sé á leið í fangelsi það sem eftir lifir ævi sinnar.
Flestar fjalla sögurnar þó um hin svæsnu kynsvöll og djöfullegu teiti sem Diddy hélt í höllum sínum og hafa einhverjir gert að því skóna að þarna hafi Diddy verið að reyna að safna saman vafasömu efni af valdamiklu fólki til þess að eiga höggstað á þetta fólk í framtíðinni og mögulega kúga það til allskyns athafna sem það annars væri ekki til í. Ekki svo ósvipað öllum viðbjóðnum og því sem fór fram í híbýlum Jeffrey Epstein.
Allt þetta og svo margt margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá skemmtilegu samsæriskenningu að Sean Love Combs, betur þekktur sem Puff Daddy eða P. Diddy sé Jeffrey Epstein Hip Hop heimsins.
HLEKKIR Á ÍTAREFNI
JUSTIN BIEBER's 48 HRS with DIDDY!!
JUSTIN BIEBER JOINS DIDDY'S DIRTY MONEY CREW!
Justin Bieber Gets EMOTIONAL About 'Protecting' Billie Eilish
1990 Drew Barrymore interviews (Oprah and Arsenio Hall)
Drew Barrymore's Classic First Appearance | Carson Tonight Show
2Pac - Hit 'Em Up (Dirty)
Gene Deal Reveals List Of HOLLYWOOD MEN Diddy SLEPT WITH (Jamie Foxx, Leo Di Caprio?!)
Gene Deal On Diddy Allegedly Having Cameras In Every Room & Blackmailing Celebrities & Politicians
DMX - Spazzes Out The Industry
2005: Diddy & The Lox HEATED Argument On Live radio Over Contract Dispute
Katt Williams on Hollywood Drug Use & Parties
Dave Chappelle Will Not Wear A Dress . Hence.. Africa!
Katt Williams on Martin Lawrence & Big Momma's House 2
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Fleiri þættir af Álhatturinn
- Artemis II tunglverkefnið var sviðsett11. september 2026
- P1: Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum | Hluti 111. september 2026
- Til er lækning við krabbameini sem haldið er frá almenningi11. september 2026
- Loch Ness skrímslið (stundum kallað Nessie) er til11. september 2026
- Tartaria var háþróuð siðmenning sem skrifuð hefur verið úr sögubókum og falin fyrir mannkyninu11. september 2026
- Bandaríkin leyfðu árásinni á Pearl Harbor að gerast til að hafa ástæðu til að taka þátt í seinni heimstyrjöldinni11. september 2026
