P2: Pýramídarnir í Egyptalandi voru ekki byggðir eins og okkur er kennt í sögubókum | Hluti 2
Pýramídarnir í Egyptalandi hafa löngum verið mörgu fólki hugleiknir og ekki að ósekju. Fá fyrirbæri, ef einhver, í heiminum þykja jafn mikil verkfræðiundur og byggingarfræðileg afrek og Pýramídarnir og framleiddar hafa verið fjöldinn allur af myndum og sjónvarpsþáttum þar sem mismiklir vitringar og fræðingar í þessum efnum spá og spekúlera hvernig pýramídarnir urðu til og hversvegna.
Sumir þessara, oft á tíðum sjálfskipuðu, fræðinga hafa eignað geimverum eða öðrum framandi verum heiðurinn að byggingu pýramídanna en aðrir vilja meina að samfélag manna hafi á öldum áður verið mun háþróaðra og tæknivæddara en fornleifafræðingar og annað fræðifólk telur.
Eða getur verið að Egyptar hafi notast við einhverskonar hraðþornandi steypu sem þeir helltu í einhverskonar form eða skapalón til að móta steinana jafnóðum og píramídarnir voru byggðir? Eða notuðu þeir kannski einhverja sérstaka tíðni eða bylgjulengd til þess að lyfta steinunum upp? Eða gengu kannski risar um jörðina og þessir risar byggðu píramídana og fóru jafnvel létta með það?
Í þessum seinni hluta Álhattarins um píramídana í Egyptalandi ræða þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áfram um Egyptaland til forna og hvaða aðrar skýringar gætu hugsanlega fræðilega legið að baki byggingu píramídanna.
Allt þetta og svo margt margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum.
HLEKKIR Á ÍTAREFNI
The Mummy Official Trailer #1 - Brendan Fraser Movie
The Mystery Of The Great Pyramid | Graham Hancock
Ancient Apocalypse | Official Trailer | Netflix
Ancient Aliens_ Great Pyramid's Shocking Precision (Season 12) History
Egyptian Pyramid Building Technique Reveal By Wally Wallington
Wally Wallington lifts 20 Ton Block By Hand?
Ancient Aliens_ Egyptian Mysteries Hide Proof of UFOs
Old Paintings with UFOs
Ancient Aliens_ Hidden Chamber Discovered in Great Pyramid
TESLA KNEW The Secret of the Great Pyramid: Unlimited Energy
Moving Large Pyramid Blocks: Testing the Wet Sand Theory
The Casing Stones & Pyramidion of The Great Pyramid
WERE THE GIANTS IN EGYPT THE BUILDERS OF THE PYRAMIDS?
The Science of Ancient Acoustic Levitation | How The Pyramids Were Built?
Ancient Aliens_ The Great Pyramids Are Power Plants
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Fleiri þættir af Álhatturinn
- Artemis II tunglverkefnið var sviðsett11. september 2026
- P1: Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum | Hluti 111. september 2026
- Til er lækning við krabbameini sem haldið er frá almenningi11. september 2026
- Loch Ness skrímslið (stundum kallað Nessie) er til11. september 2026
- Tartaria var háþróuð siðmenning sem skrifuð hefur verið úr sögubókum og falin fyrir mannkyninu11. september 2026
- Bandaríkin leyfðu árásinni á Pearl Harbor að gerast til að hafa ástæðu til að taka þátt í seinni heimstyrjöldinni11. september 2026
