Opinbera skýringin á JFK morðinu er lygi og brögð eru í tafli
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar um eina klassískustu samsæriskenningu allra tíma, morðið á John F. Kennedy forseta Bandaríkjanna.
Var Lee Harry Oswald einn að verki líkt og opinbera skýringin segir eða er um allsherjar sögufölsun að ræða og John F. Kennedy var komið fyrir kattarnef af myrkraöflum huldumanna?
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Fleiri þættir af Álhatturinn
- Artemis II tunglverkefnið var sviðsett11. september 2026
- P1: Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum | Hluti 111. september 2026
- Til er lækning við krabbameini sem haldið er frá almenningi11. september 2026
- Loch Ness skrímslið (stundum kallað Nessie) er til11. september 2026
- Tartaria var háþróuð siðmenning sem skrifuð hefur verið úr sögubókum og falin fyrir mannkyninu11. september 2026
- Bandaríkin leyfðu árásinni á Pearl Harbor að gerast til að hafa ástæðu til að taka þátt í seinni heimstyrjöldinni11. september 2026
