Samsæriskenningar
Í þessum fyrsta þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar conceptið fyrir hlaðvarpið Álhattinn, almennt um samsæriskenningar, þeirra fyrstu upplifun af þeim og uppáhalds kenningarnar þeirra.
Sérstakur málsmetandi gestur þáttarins er Gnúsi Yones sem gefur sitt take á samsæriskenningar.
Elvis lifir, Paul McCartney er dauður, Courtney drap Kurt Cobain, lentum við á tunglinu, hver byggði pýramídina, X-Files, hver stjórnar heiminum, var 9/11 samsæri, er eðlufólk til, var Covid tilraun fyrir New World Order? Þetta og margt margt fleira.
Það er beinlínis hættulegt að missa af þessum þætti því eins og allir vita eru álhattar nauðsynlegur verndarbúnaður í nútíma samfélagi. Þeir vernda gagnvart hugsanalestri og heilaþvætti yfirvalda ásamt því að vera mikilvægur partur af tískuvitund unga fólksins.
Að lokum gefa strákarnir einkunn á skalanum 1-10 um hvar þeir standa almennt gagnvart samsæriskenningum og setja tóninn fyrir næstu þætti!
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Fleiri þættir af Álhatturinn
- Artemis II tunglverkefnið var sviðsett11. september 2026
- P1: Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum | Hluti 111. september 2026
- Til er lækning við krabbameini sem haldið er frá almenningi11. september 2026
- Loch Ness skrímslið (stundum kallað Nessie) er til11. september 2026
- Tartaria var háþróuð siðmenning sem skrifuð hefur verið úr sögubókum og falin fyrir mannkyninu11. september 2026
- Bandaríkin leyfðu árásinni á Pearl Harbor að gerast til að hafa ástæðu til að taka þátt í seinni heimstyrjöldinni11. september 2026
