Samráð milli plötufyrirtækja & einkarekinna fangelsa í BNA ýtti vísvitandi undir vinsældir bófarapps (e. Gangsta Rap)
Bófarapp (e. Gangsta Rap) naut mikilla vinsælda á 10.áratug síðustu aldar og þá sér í lagi undir lok áratugarins. Menn einsog 2pac, Biggie Smalls og Coolio nutu mikilla vinsælda og sveitir á borð við Wu Tang Clan og Cypress Hill ómuðu á öldum ljósvakans.
Líf og lífstíll glæponsins sem síslaði með ýmis eiturlyf og aðra glæpi og hreykti sér svo af því í textum sínum þótti eftirsóknarvert og kvikmyndir og sjónvarpsefni sem lofsamaði þennan lífsstíl voru framleiddar í hrönnum og víðar buxur, gullkeðjur og aðrar vörur sem tengdar eru við gengja lífsstíl seldust eins og heitar lummur.
En hvað olli þessum skyndilegu og óvæntu vinsældum bófarappsins? Hversvegna fóru plötufyrirtæki allt í einu og að því er virðist upp úr þurru að leggja höfuðáherslu á tónlist og dægurmenningu sem lofsamar eiturlyfjasölu, morð og aðra glæpi? Hvað hefur þetta allt saman með menningarstríð austurstrandarinnar og vesturstrandarinnar að gera og hvers vegna var annað tónlistarfólk í öðrum geirum ekki jafn iðið við glæpastarfsemi?
Hvað hvatti þessar stóru útgáfur til þess að ýta undir samfélagsmein eins og morð og fíkniefnaneyslu? Getur verið að plötuútgefendur hafi mögulega haft hagsmuni af því að halda glæpatíðni hárri? Hvað hefur þetta með einkarekin fangelsi að gera og getur verið að eigendur fangelsanna tengist eigendum plötufyrirtækja á einhvern hátt?
Þetta, stríðið gegn fíkniefnum, deilurnar milli oasis og blur, nýjustu vendingar í rappstríðinu í Chicago og svo margt, margt fleira áhugavert í nýjasta þættinum af Álhattinum.
Þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá áhugaverðu kenningu að eigendur plötufyrirtækja og einkarekinna fangelsa í Bandaríkjunum hafi vísvitandi ýtt undir vinsældir bófarapps á 10.áratug síðustu aldar til þess að fylla fangelsin.
HLEKKIR Á ÍTAREFNI:
Ice Cube Admits 90's Gangster Rap was a Government Psyop
ÁTRÚNAÐARGOÐIN - Tungumálarar
Blondie - Rapture
Coolio - Gangsta's Paradise
Chief Keef - I Don't Like f/ Lil Reese
Scapegoat
Fbg Duck - Dead Bitches Official Video
King Von "Crazy Story"
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Fleiri þættir af Álhatturinn
- Artemis II tunglverkefnið var sviðsett11. september 2026
- P1: Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum | Hluti 111. september 2026
- Til er lækning við krabbameini sem haldið er frá almenningi11. september 2026
- Loch Ness skrímslið (stundum kallað Nessie) er til11. september 2026
- Tartaria var háþróuð siðmenning sem skrifuð hefur verið úr sögubókum og falin fyrir mannkyninu11. september 2026
- Bandaríkin leyfðu árásinni á Pearl Harbor að gerast til að hafa ástæðu til að taka þátt í seinni heimstyrjöldinni11. september 2026
