Elín Hall - Manneskjan hefur meiri seiglu en við höldum
Björn Skúlason sest niður með Elínu Hall í þessum sjöunda þætti. Elín talar á einlægan hátt um leiklistina, tónlistina og lífið í heild sinni. Hún ræðir meðal annars um erfitt tímabil sem spannaði marga mánuði þar sem þar sem taugakerfið festist í spennu í kjölfar þess að hún lék gríðarlega þungt hlutverk í kvikmyndinni Ljósbrot. Hún talar sömuleiðis um lífið með ADHD, hvernig það breyttist algjörlega við þá greiningu, ábyrgðina sem fylgdi því að leika unga Vigdísi Finnbogadóttur í samnefndum þáttum og stressið sem hún upplifði þegar þættirnir voru að koma út.
Fleiri þættir af Allt í lagi með Birni Skúlasyni
- 8. Auður og Grétar | Hugarafl2. september 2026
- Jón Jónsson - Hamingjan og gleðin er ákvörðun - og svo þarf að sinna því.11. júní 2026
- Emilíana Torrini - Ber virðingu fyrir fóli sem lifir - þrátt fyrir.11. júní 2026
- Páll Óskar - Sjúkdómurinn með stóra S-inu.17. maí 2026
- Alaska 1867 - Ef lífið væri alltaf gott væri það leiðinlegt.1. maí 2026
- Una Torfa - Skömm, sorg og einmannaleiki16. apríl 2026
