Athafnafólk er hlaðvarpsþáttur þar sem talað er við frumkvöðla og stjórnendur sem hafa náð eftirtektarverðum árangri í viðskiptalífinu. Umsjón með þáttunum hefur Sesselja Vilhjálmsdóttir.
81. Einar Örn Einarsson, meðstofnandi Serrano, Zócalo og Wok to Walk á Íslandi
2. júlí, 2025
Viðmælandi þáttarins er Einar Örn Einarsson, stofnandi og forstjóri Zócalo. Zócalo er keðja af mexíkóskum skyndibitastöðum sem eru allir reknir sem sérleyfisstaðir meðal annars í London, Stokkhólmi og Kaupmannahöfn.
80. Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi FÓLK
27. júní, 2025
Viðmælandi þáttarins er Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi og listrænn stjórnandi FÓLK. Fyrirtækið er vaxandi íslenskt hönnunarmerki sem hannar og framleiðir vörur úr endurnýjanlegu efni.
79. Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís
27. janúar, 2025
Viðmælandi þáttarins er Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís matarverslunarinnar. Gréta er fædd árið 1980 og alin upp á Flateyri og síðar í Seljahverfinu í Reykjavík.
78. Davíð Örn Símonarsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Smitten
24. janúar, 2025
Viðmælandi þáttarins er Davíð Örn Símonarson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Smitten. Smitten er vinsælasta stefnumótaforrit Íslands og stefnir að því að verða stórleikandi á markaði sem Tinder, Bumble og Hinge og önnur stefnumótaforrit hafa hafa ráðið…
77. Pétur Þór Halldórsson, stofnandi og forstjóri S4S
16. janúar, 2025
Viðmælandi þáttarins er Pétur Þór Halldórsson, forstjóri S4S. S4S rekur skóbúðirnar Steinar Waage, Kaupfélagið, Ecco, Skechers og S4S Premium Outlet, ásamt AIR verslununum og Ellingsen í Reykjavík og á Akureyri.
76. Guðmundur Hafsteinsson, frumkvöðull
14. janúar, 2025
Viðmælandi þáttarins er Guðmundur Hafsteinsson oftast kallaður Gummi, frumkvöðull og stjórnarformaður Icelandair. Gummi hefur starfað hjá stærstu tæknifyrirtækjum í heimi ásamt því að koma að stofnun nokkurra sprotafyrirtækja.
75. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku
29. nóvember, 2024
Viðmælandi þáttarins er Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku sem er þriðji stærsti raforkuframleiðandi á Íslandi og byggir á grunni Hitaveitu Suðurnesja sem var stofnuð í árslok 1974.
74. Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, meðeigandi Lindex og Gina Tricot á Íslandi
27. nóvember, 2024
Viðmælandi þáttarins er Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, stofnandi og meðeigandi Lindex og Gina Tricot á Íslandi. Lindex er sænsk verslunarkeðja sem selur kven- og barnaföt og Gina Tricot er sænsk tískukeðja sem selur kvenmannsföt.
73. Benedikt Skúlason, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Lauf
11. nóvember, 2024
Viðmælandi þáttarins er Benedikt Skúlason, stofnandi og framkvæmdastjóri Lauf. Lauf er þekktast fyrir framúrstefnulega hjólagaffla sína, en framleiðir nú og selur malar-, götu- og fjallahjól um allan heim.
Viðmælandi þáttarins er Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri sælgætisgerðarinnar Nóa Siríus. Sælgætisgerðin var stofnað árið 1920 og framleiðir og selur súkkulaði og sælgæti en árið 2021 var fyrirtækið selt til norska matvæla samsteypunnar Orkla.