Besta platan

Hljóðkirkjan

TónlistSkemmtun

Þáttur þar sem bestu plötur hljómsveita og tónlistarfólks eru ræddar. Snæbjörn Ragnarsson og dr. Arnar Eggert Thoroddsen höfðu umsjón með þáttum #0001 - #0100. Haukur Viðar Alfreðsson og dr. Arnar hafa haft umsjón frá og með þætti #0101. Baldur Ragnarsson stýrir þættinum.

#0306 The Hives – Tyrannosaurus Hives

Tyrannosaurus Hives frá árinu 2004 er besta plata sænsku hljómsveitarinnar The Hives, en á sama tíma líklega ein mest stressandi plata sem gerð hefur verið! Takið þátt í umræðunni á https://www.facebook.com/groups/bestaplatan/ og fáið aðgang að enn fleiri þáttum á https://www.patreon.com/Bestaplatan !

#0304 Testament - Practice What You Preach

Fimmta „stóra“ þrassbandið? Um það má deila en í öllu falli kann kálhorníska hljómsveitin sína list upp á tíu - og gott betur. Ferill hinnar máttugu Testament fer hér undir smásjá BP og ýmislegt fróðlegt var þar að finna. Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.

#0302 Neil Young - After The Gold Rush

Það er gaman og gott að ganga á hólm við risana endrum og eins og hér er einn slíkur, maður sem slær hvergi af eftir meira en sextíu ár í bransanum. Neil Young er sólkerfi út af fyrir sig og að mörgu að huga eins og heyra má… Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.

#0300 BP300: Yanni

Alveg frá upphafi hefur bókstaflega RIGNT inn fyrirspurnum um það hvenær við ætlum eiginlega að taka fyrir gríska hjartaknúsarann Yanni. Nú er komið að því! Ef þið fáið ekki nóg af Bestu plötunni, verið þá með okkur á Patreon og fáið þátt í hverri viku!

#0298 Bonnie Tyler - Faster Than The Speed Of Night

Bonnie heitin Tyler aflaði mikilla vinsælda á sinni tíð sökum kraftmikillar, rámrar raddar, sem þótti minna á sjálfan Rod Stewart. BP-teymið vottar þessari gegnheilu dívu virðingu sína í vönduðum þætti sem skæðasti sólmyrkvi gæti ekki unnið á. Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.

#0296 Todmobile – Todmobile

Todmobile er með allra merkilegustu poppsveitum Íslandssögunnar, bræðingur sveitarinnar á straumum og stefnum sem á pappír áttu ekki að geta átt samleið gerðu það samt í meðförum þessa framsýna þríeykið. Toppi var náð á plötu númer tvö, samnefndri sveitinni. Eða hvað? Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.

#0294 Violent Femmes – Violent Femmes

Eru til skemmtilegri, hressari, meira lífsfyllandi, brjálaðri, pönkaðri, hamingjusamari, hræðilegri, melódískari og hreint og beint sturlaðri frumburðir en fyrsta plata bandarísku þjóðlagapönksveitarinnar Violent Femmes? Varla… Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.

#0292 Gunnar Þórðarson (1945–2026)

Fótspor, handbragð og hugsun meistara Gunnars Þórðarssonar liggur bókstaflega út um allt er kemur að íslenskri tónlistarmenningu. Við BP-liðar vottum honum hér virðingu okkar.   Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.

#0290 The Doors – Strange Days

Fáar rokksveitir í sögunni hafa verið jafn áhrifaríkar, dýrkaðar og umdeildar og The Doors. Þar hélt Jim Morrison nokkur um hljóðnema og lak kynþokkinn af hverri sellu hans og það strítt. Besta plata sveitarinnar er plata tvö, Strange Days, og er það doktorinn sem fer fram með það val og er það ekki nema sæmilega umdeilt.

#0288 Ariana Grande – Dangerous Woman

Gleymið Adele, Sam Smith og Rihönnu. Þegar kemur að hreinræktuðum sönghæfileikum eru þessar poppstjörnur eins og kófdrukknir, trallandi fjósamenn á sveitaballi í samanburði við Ariönu Grande. Nei, þeir eru ekki margir poppararnir sem skáka henni á söngsviðinu. En hvernig er músíkin?

Þér gæti líka líkað...