#43 Drottningin í Dalnum
Markús Þórhallsson ræðir við Eggert Ágúst Sverrisson um nýútkomna bók hans Drottningin í Dalnum. Þetta er fyrsta bók Eggerts á þessum vettvangi. Hann lauk námi í viðskiptafræðum 1974 og starfaði að mestu við fjármál og vátryggingar á starfsferli sínum. Þegar hann lét af störfum fór hann í nám í sagnfræði og lauk BA námi 2019. Þá hóf hann að skrifa þessa einstöku bók sem er gott heimildarrit sem bregður ljósi á hag- og samfélagssögu Íslendinga í tæplega eina og hálfa öld.
Þar sem megin stef bókarinnar er samfélagslýsing árin 1800 til 1940 ræða þeir Markús og Eggert Ágúst nokkuð hinar ýmsu hliðar samfélagsgerðarinnar á 19. öld s.s. híbýli fólks, fátækraframfærslu, vinnufólk og stöðu jarðeigenda og leiguliða og samskipti þeirra í gegnum aldirnar. Sérstaklega er áhugavert mat Eggerts á leigu jarða um miðja 19. öld og samanburður við leigukjör nútímans. Þeir ræða þjóðfélags breytingarnar frá sveitasamfélaginu í þéttbýlissamfélagið sem jafna má við byltingu. Markús og Eggert ræða töluvert efnahagsþróun tímabilsins en þar nýtir Eggert hagfærði- og sagnfræðiþekkingu sína m.a. með því að greina 140 ára tímaskeið í 11 hagþróunar tímabil þar sem farið er mjög ítarlega í gegnum efnahagsstarfsemi hvers tímabils.
Fleiri þættir af Blanda – hlaðvarp Sögufélags
- #64 Reykjavík - Kaldastríðsborg?1. október 2026
- #63 - Var Sturlungaöld mesti ófriðartími Íslandssögunnar?27. ágúst 2026
- #62 - Stefán Pálsson og förufólk í Laugarnesi10. júlí 2026
- #61 Valur Gunnarsson og Bandaríkin 250 ára29. júní 2026
- #60 Ragnheiður Kristjánsdóttir og Þurfamenn fá mannréttindi3. júní 2026
- #59 Arnþór Gunnarsson og Hringvegurinn3. júní 2026
