#13 Jón Karl Helgason um Ódáinsakur
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Jón Karl Helgason um bók hans Ódáinsakur: Helgifesta þjóðardýrlinga sem kom út hjá Sögufélagi árið 2013. Jón ræðir íslenska þjóðardýrlinga, á borð við Jónas Hallgrímsson, Jón Sigurðsson og Halldór Laxness, hvernig þeir fengu þetta hlutverk, hvað það þýðir og hvernig það hefur þróast. Einnig tengir hann sögu þeirra við aðra þjóðardýrlinga í Evrópu og segir frá alþjóðlegu samstarfsverkefnum á þessu sviði. Nýlega var greinasafn um þetta efni, Great Immortality: Studies on European Cultural Sainthood (Brill 2019) sem Jón Karl ritstýrði ásamt Marijan Dović, ein af fjórum fræðibókum til að hljóta tilnefningu til verðlauna evrópskra samanburðarbókmenntafræðinga (ESCL Excellence Award for Collaborative Research).
Fleiri þættir af Blanda – hlaðvarp Sögufélags
- #64 Reykjavík - Kaldastríðsborg?1. október 2026
- #63 - Var Sturlungaöld mesti ófriðartími Íslandssögunnar?27. ágúst 2026
- #62 - Stefán Pálsson og förufólk í Laugarnesi10. júlí 2026
- #61 Valur Gunnarsson og Bandaríkin 250 ára29. júní 2026
- #60 Ragnheiður Kristjánsdóttir og Þurfamenn fá mannréttindi3. júní 2026
- #59 Arnþór Gunnarsson og Hringvegurinn3. júní 2026
