Kreppuverðbólga orðin staðreynd | Hluthafaspjallið | S03E09 | Þátturinn í heild sinni
Þórður Pálsson, fjárfestingastjóri Sjóvár, fjallar um ástand og horfur í íslenska hagkerfinu í Hluthafaspjallinu með Sigurði Má Jónssyni. Síðast þegar Þórður mætti í Hluthafaspjallið, í nóvember síðastliðnum, hafði Seðlabankinn lækkaði vexti og fjárfestar höfðu ástæðu til að ætla að framhald yrði á því. Á þeim tíma var hætta á kreppuverðbólgu (stagflation) til umræðu en nú er hún orðin staðreynd. Ljóst er að verðbólgan er tregari og seigari en menn vonuðu og um leið er ríkið orðið leiðandi í launa- og verðlagshækkunum. Þórður bendir á þær mótsagnir sem nú má finna á hinu pólitíska sviði sem smitast út í hagstjórnina og bendir á umræðu í Þjóðhagsráði í vikunni þar sem þeir sem skipta þjóðarkökunni eru orðnir allsráðandi. Þórður sagði einnig að afleiðingar af verðtryggingu bóta gætu orðið meiri og kostnaðarsamari en séð var fyrir og skoðar málið út frá ávöxtunarkröfu lengstu ríkisskuldabréfanna og bendir á að þar með megi núvirða kostnaðinn upp á 200 milljarða króna. Því miður sé staðan núna þannig að í dag séu meiri líkur á vaxtahækkun en lækkun enda sé í raun enginn að taka ábyrgð á hagstjórninni og Seðlabankinn sitji einn með vandann.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Fleiri þættir af Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
- „Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E595. október 2026
- Sadó-masókismi íslenskra kjósenda | Harmageddon | S04E371. október 2026
- Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E5829. september 2026
- Ísland á bandarísku áhrifasvæði | Harmageddon | S04E3623. september 2026
- Jón Helgi: „Ríkisstjórnin stöðvaði vinnu að betra íbúðalánakerfi“ | Spjallið með Frosta | S04E5721. september 2026
- Tæp 60% atvinnulausra eru útlendingar – en umræðan er vandamálið | Harmageddon | S04E3516. september 2026






