Ástandið hvergi eins slæmt og á Íslandi | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E12
Julie Bindel er rithöfundur, þáttastjórnadi og blaðamaður fyrir breska dagblaðið The Telegraph. Hún er róttækur femínisti sem hefur í áratugi verið þekkt fyrir baráttu sína gegn kvenfyrirlitningu og kynbundnu ofbeldi. Hún hefur komið nokkrum sinnum til Íslands og vann hér á árum áður með Stígamótum þegar samtökin börðust gegn rekstri nektardansstaða í Reykjavík. Nú er hún komin til landsins til að vinna rannsóknargrein um stöðu kvenréttinda á Íslandi en segir að Stígamót vilji núna ekkert með sig hafa, og að þær hafi í raun neitað að hitta hana í þessari heimsókn. Julie segir það vera vegna skoðanna sinna á transmálefnum sem hún hefur á undanförnum árum gagnrýnt mjög harðlega þar sem hún trúir því að transhugmyndafræðin hafi gert lítið annað en að grafa undan femíniskri baráttu. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Fleiri þættir af Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
- „Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E595. október 2026
- Sadó-masókismi íslenskra kjósenda | Harmageddon | S04E371. október 2026
- Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E5829. september 2026
- Ísland á bandarísku áhrifasvæði | Harmageddon | S04E3623. september 2026
- Jón Helgi: „Ríkisstjórnin stöðvaði vinnu að betra íbúðalánakerfi“ | Spjallið með Frosta | S04E5721. september 2026
- Tæp 60% atvinnulausra eru útlendingar – en umræðan er vandamálið | Harmageddon | S04E3516. september 2026






