Flug, fjarskipti og upplýsingagjöf | Hluthafaspjallið | S03E07 | Þátturinn í heild sinni
Kauphöllin hefur verið áfram stefnulítil en grænn föstudagur bjargar helgarstemningunni. Tíðindi úr fjarskiptaheiminum en Nova hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í tæknifyrirtækinu Ofar á 4,4 milljarða króna. Ritstjórarnir fara yfir forsendur kaupanna en ekki síður söguna um Nýherja, Origo og nú Ofar. Einnig var farið yfir þá hörðu gagnrýni sem kom fram á upplýsingagjöf Alvotechs frá hluthafa í félaginu sem sakar stjórnendur um ófullnægjandi upplýsingagjöf, ósanngjarna fjármögnun gagnvart öðrum hluthöfum og að hafa gefið markaðnum of bjarta mynd af stöðu fyrirtækisins. Ritstjórarnir telja að boltinn sé hjá stjórnendum félagsins sem skuldi markaðnum betri útskýringar. Í lok þáttarins kom síðan Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, og ræðir hann stöðu félagsins nú þegar enn á ný er farið að ræða um dulin verðmæti og upplausnarvirði. Bogi er bjartsýnn á rekstur Icelandair með breyttan flugflota en framundan eru einnig samningaviðræður um hvernig sala á ETS-kolefniseiningum snertir reksturinn.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Fleiri þættir af Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
- „Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E595. október 2026
- Sadó-masókismi íslenskra kjósenda | Harmageddon | S04E371. október 2026
- Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E5829. september 2026
- Ísland á bandarísku áhrifasvæði | Harmageddon | S04E3623. september 2026
- Jón Helgi: „Ríkisstjórnin stöðvaði vinnu að betra íbúðalánakerfi“ | Spjallið með Frosta | S04E5721. september 2026
- Tæp 60% atvinnulausra eru útlendingar – en umræðan er vandamálið | Harmageddon | S04E3516. september 2026






