Fjárfestar kjarklausir og ráðvilltir | Hluthafaspjallið | S03E06
Í sextugasta þætti Hluthafaspjallsins fara ritstjórarnir, Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson, yfir það helsta í efnahagslífinu og kauphöllinni. Nú er það svo að allar fréttir eru metnar neikvæðar af fjárfestum, rauðar tölur dag eftir dag og líklega mun ekkert gerast fyrr en verðbólga og vextir lækka. Því er spáð að næsta verðbólgumæling verði upp á 4,9%! Á Viðskiptaþingi var rætt um að heimurinn stæði á krossgötum sem er sjálfsagt rétt í ljósi tollastríðs, reglugerðarfargans og skorts á samkeppnishæfni. En sem betur fer halda íslensku bankarnir sjó og samanlagður hagnaður bankanna þriggja í fyrra, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans, nemur nærri 94 milljörðum króna. Háar arðgreiðslur eru boðaðar og fjárfestar í bönkunum gleðjast. Á meðan á Icelandair í vandræðum og nú er það veiking Bandaríkjadals á liðnu ári sem hafði verulega neikvæð áhrif á afkomu Icelandair og skýrir að stórum hluta rekstrartap flugfélagsins þrátt fyrir ágætis tekjuvöxt og bata á fjórða ársfjórðungi. Þá ættu hluthafar í Festi og Heimum að leggja við hlustir. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Fleiri þættir af Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
- „Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E595. október 2026
- Sadó-masókismi íslenskra kjósenda | Harmageddon | S04E371. október 2026
- Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E5829. september 2026
- Ísland á bandarísku áhrifasvæði | Harmageddon | S04E3623. september 2026
- Jón Helgi: „Ríkisstjórnin stöðvaði vinnu að betra íbúðalánakerfi“ | Spjallið með Frosta | S04E5721. september 2026
- Tæp 60% atvinnulausra eru útlendingar – en umræðan er vandamálið | Harmageddon | S04E3516. september 2026






