Atvinnulífið er byrjað að spila varnarleik | Hluthafaspjallið | S03E04
Það fer ekki á milli mála að atvinnulífið er byrjað að spila varnarleik og þess sjást víða merki. Atvinnuleysi er að aukast og fjöldauppsagnir að verða tíðari í fréttum; verðbólgan er ekki á niðurleið heldur uppleið; aukin spenna sýnist á stjórnarheimilinu; bankar eru byrjaðir að fá fyrirtæki í fangið og áfram mætti rekja. Hvernig leggst árið 2026 í stjórnendur og hversu mikilvægt er að þeir forgangsraði og geri réttu hlutina? Svo er það spurningin - er kostnaður við að eiga hlutabréfaviðskipti of hár á Íslandi miðað við erlendis. Þetta og margt fleira er í þessum nýjasta þætti Hluthafaspjallsins þar sem ritstjórarnir Jón G. og Sigurður Már fá til sín góða gesti; þau Hermann Guðmundsson, forstjóra Kemi, Snædísi Ögn Flosadóttur, forstöðumann á mörkuðum hjá Arion banka og Guðrúnu Högnadóttur, framkvæmdastjóra FranklinCovey á Íslandi.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Fleiri þættir af Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
- „Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E595. október 2026
- Sadó-masókismi íslenskra kjósenda | Harmageddon | S04E371. október 2026
- Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E5829. september 2026
- Ísland á bandarísku áhrifasvæði | Harmageddon | S04E3623. september 2026
- Jón Helgi: „Ríkisstjórnin stöðvaði vinnu að betra íbúðalánakerfi“ | Spjallið með Frosta | S04E5721. september 2026
- Tæp 60% atvinnulausra eru útlendingar – en umræðan er vandamálið | Harmageddon | S04E3516. september 2026






