Spjallið með Frosta Logasyni | S03E26 | Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsmála rúinn öllu trausti
Páll Melsted, doktor í stærðfræði og Jóhanna Jakobsdóttir, doktor í líftölfræði eru nýjustu gestir Spjallsins með Frosta Logasyni. Þau eru foreldrar barna í íþróttafélaginu Aþenu og þekkja vel til starfa körfuknattleiksþjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar. Í þessu viðtali ræða þau meðal annars um skýrslu sem samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsmála vann um þjálfunaraðferðir Brynjars Karls. Þau segja fræðileg vinnubrögð skýrslunnar fá algjöra falleinkun og telja ljóst að hún hafi í raun og veru verið pöntuð af Íþróttasambandi Íslands til þess að koma höggi á Brynjar Karl. Þá segja þau skýrsluna rýra allan trúverðugleika samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsmála og hafa farið fram á að Barna- og menntamálaráðuneytið geri úttekt embættinu og vinnubrögðum þess.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Fleiri þættir af Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
- „Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E595. október 2026
- Sadó-masókismi íslenskra kjósenda | Harmageddon | S04E371. október 2026
- Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E5829. september 2026
- Ísland á bandarísku áhrifasvæði | Harmageddon | S04E3623. september 2026
- Jón Helgi: „Ríkisstjórnin stöðvaði vinnu að betra íbúðalánakerfi“ | Spjallið með Frosta | S04E5721. september 2026
- Tæp 60% atvinnulausra eru útlendingar – en umræðan er vandamálið | Harmageddon | S04E3516. september 2026






