Hluthafaspjallið | S02E12 | Guðmundur hjá Brimi og María hjá Símanum í viðtali
Ritstjórarnir, þeir Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson, rýna í kristalskúlu heimsviðskiptanna þar sem tollastefna Donalds Trumps Bandaríkjaforseta mótar umhverfið þessa dagana. Hvernig endar tollastríðið og hvað er planið, erum við að tala um samningatækni eða tekjuöflun? Allt hefur þetta skapað miklar sveiflur og taugaveiklun á hlutabréfa- og hrávörumörkum en ritstjórarnir láta sér ekki bregða og kryfja málið á sinn einstaka hátt.
Þá komu tveir góðir gestir, þau Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf. sem var kosinn formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á aðalfundi samtakanna síðasta föstudag og María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans. Guðmundur hefur miklar efasemdir um hækkun á auðlindaskatti eins og ný ríkisstjórn setur málið upp núna og kemur með áhugaverð rök með vísun í lagabreytingar og þróun fiskveiðistjórnunarkerfisins. Fáir eða engir þekkja þá sögu betur. Í seinni hluta þáttarins kemur María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, en hún er búin að ráðast í mikla stefnumótunarvinnu enda kallaði sala á grunnkerfum Símans á slíkt. Verkfræðingurinn María Björk er nýr stjórnandi í Kauphöllinni og hefur áhugaverða sýn á hlutverk stjórnandans. Stútfullur þáttur að venju.
Fleiri þættir af Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
- „Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E595. október 2026
- Sadó-masókismi íslenskra kjósenda | Harmageddon | S04E371. október 2026
- Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E5829. september 2026
- Ísland á bandarísku áhrifasvæði | Harmageddon | S04E3623. september 2026
- Jón Helgi: „Ríkisstjórnin stöðvaði vinnu að betra íbúðalánakerfi“ | Spjallið með Frosta | S04E5721. september 2026
- Tæp 60% atvinnulausra eru útlendingar – en umræðan er vandamálið | Harmageddon | S04E3516. september 2026






