Óstjórn efnahagslífsins og eikur fasteignamarkaðarins | Hluthafaspjallið | S03E13
Ritstjórarnir, þeir Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson, rýna í efnahags- og viðskiptalífið en því miður eru fá merki að sjá um að stjórnvöld séu að ná tökum á verðbólgu. Í nýrri hagspá Greiningardeildar Landsbankans er gert ráð fyrir að verðbólga verði að meðaltali 4,8 prósent í ár og að stýrivextir verði hækkaðir upp í 8,25 prósent á þessu ári. Um leið hefur viðræðum um sameiningu Kviku og Arion banka verið slitið en Samkeppniseftirlitið, sem þriðji partner í viðskiptunum, hefur í raun komið í veg fyrir sameininguna. Ritstjórarnir kalla eftir skýringum Samkeppniseftirlitsins.Í seinni hluta þáttarins mætti Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri Eikar fasteignafélags, en félagið á nánast einn fermeter fyrir hvern Íslending. Félagið hélt aðalfund í vikunni og hefur hækkað arðgreiðslur frá fyrra ári um 10%. Hreiðar Már segir að félagið eigi að vera trygg fjárfesting fyrir ömmu og afa sem vilji njóta öruggrar ávöxtunar í ellinni. Eigendastefna Eikar hefur skýrst undir stjórn Hreiðars og félagið fjárfestir í stórum eignum sem henta atvinnulífinu. Ef þú ert að selja fimm milljarða eign snýrðu þér til Eikar.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Fleiri þættir af Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
- „Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E595. október 2026
- Sadó-masókismi íslenskra kjósenda | Harmageddon | S04E371. október 2026
- Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E5829. september 2026
- Ísland á bandarísku áhrifasvæði | Harmageddon | S04E3623. september 2026
- Jón Helgi: „Ríkisstjórnin stöðvaði vinnu að betra íbúðalánakerfi“ | Spjallið með Frosta | S04E5721. september 2026
- Tæp 60% atvinnulausra eru útlendingar – en umræðan er vandamálið | Harmageddon | S04E3516. september 2026






