Viðtal við forstjóra Beru - og ruglið í Berlingske | Hluthafaspjallið | S03E14 | Þátturinn í heild sinni
Það var líflegt viðtal okkar Sigurðar Más við Jón Þorstein Oddleifsson, forstjóra Beru, í nýjasta þætti Hluthafaspjallsins sem tekið var upp í hádeginu í dag. Bera var nafn á móður Egils Skallagrímssonar og það varð fyrir valinu þegar nýtt skipulag var kynnt á starfsemi Ölgerðarinnar í endaðan febrúar sl. Bera er núna móðurfélag samstæðunnar og skráð í Kauphöllina en undir fyrirtækið heyra núna fjögur félög og er Ölgerðin eitt þeirra. Jón Þorsteinn segir að með nýju skipulagi sé verið að skerpa línur og fá skýrari sýn og markmið á hverja einingu fyrir sig. Undirfélög Beru eru Ölgerðin, Danól, Gæðabakstur og Kjarnavörur. Þá fara þeir Jón G. og Sigurður Már yfir stöðuna í efnahagsmálum og spyrja sig hvort ríkisstjórnin hafi misst tökin og fókusinn á efnahagsmálin með því að leggja alla áherslu núna á ESB-viðræður. Þá tæta þeir ruglið í danska Berlingske með ólígarkíana í sig. Öflugur þáttur að venju.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Fleiri þættir af Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
- „Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E595. október 2026
- Sadó-masókismi íslenskra kjósenda | Harmageddon | S04E371. október 2026
- Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E5829. september 2026
- Ísland á bandarísku áhrifasvæði | Harmageddon | S04E3623. september 2026
- Jón Helgi: „Ríkisstjórnin stöðvaði vinnu að betra íbúðalánakerfi“ | Spjallið með Frosta | S04E5721. september 2026
- Tæp 60% atvinnulausra eru útlendingar – en umræðan er vandamálið | Harmageddon | S04E3516. september 2026






