Giftist Palestínumanni - síðar kom í ljós að hann var Hamas-liði á Íslandi | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E38
Í þessu viðtali segir Sigurlín Guðmundsdóttir frá sambandi sínu við palestínskan hælisleitanda sem hún kynntist árið 2022, hjálpaði til Íslands og giftist bæði samkvæmt íslömskum sið og síðar borgaralega.
Það sem byrjaði sem ástarsaga breyttist hins vegar í martröð.
Eftir árásirnar 7. október segir Sigurlín að eiginmaður hennar hafi fagnað árásunum, og í kjölfarið hafi hann viðurkennt fyrir henni að vera tengdur Hamas – og síðar beinlínis Hamas-liði. Hún segir hann hafa lýst herþjálfun sinni, störfum í göngum Hamas á Gaza og tengslum fjölskyldu sinnar við samtökin.
Í viðtalinu lýsir hún einnig hvernig hún telur að fé sem safnað var hér á Íslandi „fyrir fjölskyldu á Gaza“ hafi að hluta ratað til þekkts Hamas-liða, hvernig maðurinn hennar fylgdist með henni, hakkaði síma og tölvu og beitti hana andlegu ofbeldi.
Sigurlín segir að fyrrverandi eiginmaður hennar sé enn á Íslandi þrátt fyrir brottvísun, og varar við því sem hún telur vera stærra net Hamas-tengdra einstaklinga hér á landi.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Fleiri þættir af Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
- „Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E595. október 2026
- Sadó-masókismi íslenskra kjósenda | Harmageddon | S04E371. október 2026
- Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E5829. september 2026
- Ísland á bandarísku áhrifasvæði | Harmageddon | S04E3623. september 2026
- Jón Helgi: „Ríkisstjórnin stöðvaði vinnu að betra íbúðalánakerfi“ | Spjallið með Frosta | S04E5721. september 2026
- Tæp 60% atvinnulausra eru útlendingar – en umræðan er vandamálið | Harmageddon | S04E3516. september 2026






