Bítið - mánudagur 13. apríl
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari.
Sveinn Akerlie, einn af stofnendum AviLabs, ræddi við okkur um lausn á vandamálum flugfélaga er varðar ferðarof.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, ræddi flugið yfir Eyjar og samgöngur almennt.
Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands og Jón Þór Víglundsson, fyrrverandi formaður handknattleiksdeildar KR, ræddu kostnað við íþróttaiðkun barna.
Dagmar Valsdóttir og Eva Lind Matthíasdóttir, Grindvíkingar ræddu málefni Grindvíkinga eftir nýjustu tilmæli Grindavíkurnefndar.
Kristjan Ingi Mikaelsson, sjóðstjóri hjá Visku sjóðum, ræddi við okkur um nýjustu vendingar í gervigreindinni.
Aron Guðmundsson, íþróttafréttamaður Sýnar, ræddi umferðina í enska boltanum.
Guðmundur Einar Arason, Halldór Óli Arnarsson, Ísak Rökkvi Davíðsson og Valur Rúnarsson Bridde eru ungir frumkvöðlar úr Verzunarskóla Íslands og stofnuðu fyrirtækið Grásíða, grasida.is.
Fleiri þættir af Bylgjan
- Reykjavík síðdegis - þriðjudagur 6. október 20266. október 2026
- Bítið - þriðjudagur 6. október6. október 2026
- Reykjavík síðdegis - mánudagur 5. október 20265. október 2026
- Bítið - mánudagur 5. október5. október 2026
- Sprengisandur 04.10.2026 - Viðtöl þáttarins4. október 2026
- Bakaríið - 3. október 20263. október 2026



