Sprengisandur 22.02.2026 - Viðtöl þáttarins
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Úkraína/alþjóðamál
Albert Jónsson fyrrverandi Sendiherra
Jón Ólafsson, prófessor við HÍ
Fjögur ár er nú, nánast upp á dag, frá því Rússar gerðu innrás í Úkraínu - Albert og Jón líta um öxl og velta fyrir sér þeim gríðarlegu áhrifum sem þetta hefur haft á heimsmálin.
Stjórnmál
Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins
Lilja svarar því hvert hún vill stefna með flokkinn sem nýtur afar lítils fylgis þessa dagana, hvað ætlar hún sér sem formaður?
Afbrot og tölfræði
Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur
Afbrotatengd tölvræði er oftsinnis notuð til að ýta undir ranghugmyndir um samfélög - Margrét ræðir þessa þróun og birtingarmyndir hennar.
Tryggingamarkaður
Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna
Neytendasamtökin hafa lagt fram ítarlegar greinargerð um vankanta á íslenskum tryggingamarkaði - hver eiga viðbrögðin að vera?
Fleiri þættir af Bylgjan
- Reykjavík síðdegis - þriðjudagur 6. október 20266. október 2026
- Bítið - þriðjudagur 6. október6. október 2026
- Reykjavík síðdegis - mánudagur 5. október 20265. október 2026
- Bítið - mánudagur 5. október5. október 2026
- Sprengisandur 04.10.2026 - Viðtöl þáttarins4. október 2026
- Bakaríið - 3. október 20263. október 2026



