Sprengisandur 08.02.2026 - Viðtöl þáttarins
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Epstein skjölin
Kristján Guy Burgess, alþjóða stjórnmálafræðingur
Hvaða ályktanir má draga af Epstein skjölunum, vinfengi Epsteins við valdafólk úr öllum áttum og hver verða áhrifin birtingar þeirra á næstunni.
Hver er staðan í efnahagsmálunum, er ástæða til að hafa áhyggjur, vextir áfram háir og verðbólga lætur ekki undan síga. Atvinnuleysi eykst en þó er enn mikill kraftur í vinnumarkaði og einkaneyslu veruleg á sama tíma og opinberir aðilar nota tækifærið til að hækka gjöld.
Er EST kerfið, meginverkfæri ESB til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með því að krefja fyrirtæki um greiðslu fyrir útblástur sinn, íslendingum einstaklega óhagstætt. Undanþágur gilda til næstu áramót en viðbúið að gjöld hækki þá verulega - Viðskiptaráð krefst aðgerða af hálfu stjórnvalda en Geir segir þetta kerfi virka eins og það átti að gera.
Halldóra Guðmundsdóttir, leikskólastjóri
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar
Bréf 63 leikskólastjóra til Reykjavíkurborgar í síðustu viku með kröfu um tafarlausar umbætur í rekstri leikskóla, vakti mikla athygli. Ástandið er alvarlegt, ekki lengur hægt að vinna undir þessum kringumstæðu segja leikskólastjórar en hvað gerist þá næst?
Fleiri þættir af Bylgjan
- Reykjavík síðdegis - þriðjudagur 6. október 20266. október 2026
- Bítið - þriðjudagur 6. október6. október 2026
- Reykjavík síðdegis - mánudagur 5. október 20265. október 2026
- Bítið - mánudagur 5. október5. október 2026
- Sprengisandur 04.10.2026 - Viðtöl þáttarins4. október 2026
- Bakaríið - 3. október 20263. október 2026



