Sprengisandur 01.02.2026
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Stjórnmál
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og borgarstjóri
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hlaut á dögunum Þakkarviðurkenningu FKA 2026 fyrir ævilangt og áhrifamikið framlag til stöðu kvenna, forystu og samfélagslegrar framþróunar. Hún ræðir þá viðurkenningu og lítur yfir farin veg auk þess að ræða nútímann og þróun í stjórnmálum.
Efnahagsmál
Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra
Nýjar verðbólgutölur vekja ugg hjá landsmönnum. Fjármálaráðherrann er í eldlínunni, viðurkennir að baráttan við verðhækkanir gangi ekki nógu vel, hagkerfið er að stöðvast og atvinnuleysi að aukast. Hvað er til ráða?
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS
Jóhann Helgi Stefánsson framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga
Eitt umdeildasta mál nútímans varðar eldi á frjóum laxi í fjörðum landsins og áhættu á erfðablöndun við villta laxastofna í íslenskum ám. Þar mætast stálin stinn þegar kemur að vernd eða nýtingu.
Jón Gunnar Ólafsson lektor við Háskóla Íslands.
Jón hefur langa reynslu af rannsóknum á áhrifum falsfrétta og upplýsingaóreiðu í opinberri umræðu - hvaða áhrif hafa stafrænar breytingar haft á umhverfi stjórnmála, fjömiðlunar og samræðu og þar með lýðræðisins á síðustu árum?
Fleiri þættir af Bylgjan
- Reykjavík síðdegis - þriðjudagur 6. október 20266. október 2026
- Bítið - þriðjudagur 6. október6. október 2026
- Reykjavík síðdegis - mánudagur 5. október 20265. október 2026
- Bítið - mánudagur 5. október5. október 2026
- Sprengisandur 04.10.2026 - Viðtöl þáttarins4. október 2026
- Bakaríið - 3. október 20263. október 2026



