Sprengisandur 09.07.2023 - Viðtöl þáttarins
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
1. Guðmundur Fertram Sigurjónsson stofnandi Kerecis á línunni að vestan, en engum blöðum er um að fletta að sala á hlutafé fyrirtækisins er til vitnis um ævintýralegan árangur.
2. Óli Björn Kárason alþingismaður fer yfir gagnrýni sína á matvælaráðherra eftir að hún frestaði hvalveiðum. Ríkisstjórnarsamstarfið er undir að mati Óla Björns, skýrt og skorinort.
3. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir alþingismaður tók að sér að birta hina langþráðu skýrslu/greinargerð/athugun setts ríkisendurskoðanda frá 2018. Hvað þýðir þessi birting og hverjar verða afleiðingarnar? Hún svarar því og skiptist á skoðunum við Teit Björn Einarsson alþingismann.
4. Reykjanesið og jarðhræringar.
Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræðingur ræðir stöðuna á Reykjanesi.
Fleiri þættir af Bylgjan
- Reykjavík síðdegis - þriðjudagur 6. október 20266. október 2026
- Bítið - þriðjudagur 6. október6. október 2026
- Reykjavík síðdegis - mánudagur 5. október 20265. október 2026
- Bítið - mánudagur 5. október5. október 2026
- Sprengisandur 04.10.2026 - Viðtöl þáttarins4. október 2026
- Bakaríið - 3. október 20263. október 2026



