Svona var sumarið 2013
LENGJAN - SJÓVÁ - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S
Eftir að hafa íhugað það í tvö ár ákváðum við að hleypa lofti út um lúgur(NB - á kolsvörtum rúðum) og gefa South Centralesque rappara sénsinn á að veita okkur fullnægingu í eyrun. Nýtt 5 ára plan er í smíðum á Hlíðarenda og það er lúður klár fyrir þá sem láta röng orð af sinni tungu. Orri fór yfir það þegar hann hægði sér í hnéháa hvönn og upp í Árbæ æfði ungur Selfyssingur tvisvar á dag til að uppfylla drauma sína sem áttu að rætast á næstu þremur árum. Leikmenn hentuðu ekki gildum Breiðabliks og leikmaður KR smalaði saman öllum helstu listamönnum landsins og tók þá með sér á sannkallaðan revenge tour yfir 22 leiki. Svona var sumarið 2013. Minnum á leiðréttingahornið, það er heldur betur að reynast nauðsynlegt!
Viðmælendur:
Viðar Örn Kjartansson - leikmaður Fylkis 2013 og fyrrum söngvari hljómsveitarinnar Casio.
Guðmundur Steinn Hafsteinsson - leikmaður Víkings Ólafsvíkur 2013 og harðasti Top Gun maður þjóðarinnar.
Kristján Óli Sigurðsson - viðmælandi í Akraborginni veturinn 2012 og sannleiksvél.
Fleiri þættir af Draumaliðið
- Svona var HM spurningakeppnin: Draumaliðið v. Sýn Sport9. júní 2026
- Svona var: HM 2002 - Það var Hyundai sem bjargaði mér22. maí 2026
- Svona var HM 1998: Margmiðlun, flogaköst og hvítir bjargvættir7. maí 2026
- Svona var: HM 1994 - Rothenberg, Romario og Roberto Baggio30. apríl 2026
- Simon Tibbling24. apríl 2026
- Svona var: HM - Draumalið HMlegra leikmanna17. apríl 2026




