Guðmann Þórisson
Guðmann Þórisson, eða Tuðmann eins og þjóðin kallar hann oft, var auðmýktin uppmáluð og lét tuðið eiga sig þegar hann mætti í Draumaliðið. Hann rúllaði yfir Draumaliðið sitt í þættinum og lagði ríka áherslu á að liðspartýin yrðu að vera góð þegar liðið myndi taka móralskan saman. Fórum líka yfir tíma hans í atvinnumennsku, af hverju hann hefur tekið FH framyfir Breiðablik tvívegis og tímana með Hjörvari og Höfðingjanum í Breiðablik 2005.
PSA - það þarf mögulega eitthvað að skrúfa upp í hljóðinu í tækjunum sem þið eruð að nota til að hlusta, tæknimennirnir að skíta á sig.
Fleiri þættir af Draumaliðið
- Svona var HM spurningakeppnin: Draumaliðið v. Sýn Sport9. júní 2026
- Svona var: HM 2002 - Það var Hyundai sem bjargaði mér22. maí 2026
- Svona var HM 1998: Margmiðlun, flogaköst og hvítir bjargvættir7. maí 2026
- Svona var: HM 1994 - Rothenberg, Romario og Roberto Baggio30. apríl 2026
- Simon Tibbling24. apríl 2026
- Svona var: HM - Draumalið HMlegra leikmanna17. apríl 2026




