Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.

Edition-málið
Fá mál hafa vakið jafn mikla athygli og óhug og Edition málið svokallaða. Frönsk fjölskylda, hjón og 29 ára dóttir þeirra, komu hingað til lands júní 2025 í þeim tilgangi að fremja sjálfsvíg saman á Edition lúxushótelinu. Þegar lögregla kom á vettvang á voru eiginmaður og dóttir Ming Ting Mancel látin af völdum stungusára, en Ming Ting sjálf lifði af. Hún afplánar nú 12 ára fangelsisdóm í fangelsinu á Hólmsheiði. Við förum yfir þetta mál og dóminn yfir Ming Ting, sem á engan sinn líka í nútíma réttarsögu, með Ómari Erni Bjarnþórssyni verjanda hennar. Samsetning: Adelina Antal Samstarfsaðilar Eftirmála: 🚗Go Bílaleiga 🩺 Intuens ✨Húðfegrun 🛒Krónan 🌀Sjóvá 🍬Góa 📲Alfreð 🤸🏼♂️ World Class Eftirmál.is Vertu með okkur á Instagram

➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️ Nadine og Þórhildur fara um víðan völl í Öðrum málum. Í þessum þætti ræða þær við Leif Halldórsson rannsóknarlögreglumann sem rifar upp hvarf Birnu Brjánsdóttur, yfirheyrslur yfir Thomasi Möller Olsen og fleiri eftirminnileg mál frá hans ferli. Þá förum við yfir lausa enda í Edition-málinu.

Þórhildur og Nadine kynna spennandi breytingar og glænýtt systurhlaðvarp Eftirmála - Önnur mál. ➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is

Hryðjuverkamálið
Sérsveit ríkislögreglustjóra fór í umfangsmiklar aðgerðir í september 2021 og gerði upptæk þrívíddarprentuð vopn sem talið var að væru ætluð til að fremja hryðjuverk hér á landi. Tveir menn voru handteknir og ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka sem er einsdæmi í íslenskri réttarsögu. Í kjölfarið velktist málið um í réttarkerfinu í fjögur ár og í ljós kom að ekki var allt sem sýndist. Við ræðum við einn sakborninganna og lögmann hans í þættinum. Málið er eitt umfangsmesta, umtalaðsta og umdeildasta sakamál sem komið hefur upp hér á landi. Samsetning: Adelina Antal Styrktaraðilar Eftirmála eru: - Birgisson - Góa - Húðfegrun - Scandi Home

Leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar á K2, hættulegasta fjall jarðar, í febrúar 2021 átti eftir að reynast örlagaríkur. Hann freistaði þess að verða fyrstur manna til að klífa fjallið að vetrarlagi og þjóðin bæði fylgdist með undirbúningnum að ferðinni og hélt niðri í sér andanum þegar hætti að heyrast frá honum. Farið var í umfangsmiklar leitaraðgerðir á þessu miskunarlausa fjalli í Pakistan, þar sem aðstæður geta breyst á augabragði og mistök geta haft afdrifaríkar afleiðingar. Einar Bárðarson, vinur Johns Snorra, fer yfir málið með okkur og útskýrir af hverju hann vill halda minningu vinar síns á lofti og hvers vegna menn leggja í slíka hættuför. Samsetning: Adelina Antal Styrktaraðilar Eftirmála eru: - Birgisson - Góa - Húðfegrun

Stórtækasta innrás í einkalíf Íslendinga sem nokkru sinni hefur átt sér stað var þegar tölvuþrjótar láku tugþúsundum sms skilaboðum Íslendinga á netið í Vodafone-lekanum árið 2013. Hver sem er gat þannig flett upp persónulegum málum fólks um allt á milli himins og jarðar. Tveimur árum síðar voru svo viðkvæmar persónuupplýsingar yfir 100 Íslendinga sem skráðir voru á framhjáhaldssíðuna Ashley Madison gerðar opinberar og Ice Hot 1 kom fram á sjónarsviðið. Atli Fannar Bjakason blaðamaður þekkir málin vel og fer með okkur yfir þau í þættinum. Samsetning: Adelina Antal Styrktaraðilar Eftirmála eru: - Sebastian hárvörur - Birgisson - Scandi Home - Góa - Húðfegrun

Krýsuvíkurmálið
Haustið 2024 fór hrollur um þjóðina þegar karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana skammt frá Krýsuvíkurvegi. Ýmsar sögusagnir fóru á flug og enn eru spurningar sem lögreglan fékk aldrei svör við. Atburðarásin vakti líka um stórar spurningar um stöðu geðheilbrigðismála hér á landi. Leifur Halldórsson rannsóknarlögreglumaður fór með rannsókn þessa sorglega máls og fer fer yfir það í þættinum. Samsetning: Adelina Antal Styrktaraðilar Eftirmála eru: - Birgisson - Scandi Home - Góa - Sebastian hárvörur - Bliss - Húðfegrun

Fá sakamálmál hafa haft jafn mikil áhrif á íslensku þjóðina og morðið á Hannesi Þór Helgasyni árið 2010. Morðið var einstaklega hrottafengið og þaulskipulagt auk þess sem nokkuð langan tíma tók að upplýsa það. Gunnar Rúnar Sigurþórsson játaði verknaðinn en hann var hugfanginn af kærustu Hannesar og hafði fyrir morðið sett ástarjátningu til hennar á YouTube. Patrik Atlason, systursonur Hannesar, var 16 ára þegar frændi hans var myrtur en hann fer yfir málið með okkur og lýsir þeim gríðarlega mótandi áhrifum sem það hafði á líf hans.

Átta þúsund manns tóku á móti Magna Ásgeirssyni í Smáralind þegar hann snéri heim eftir þátttöku í raunveruleikaþættinum Rock Star Supernova. Þjóðin stóð á öndinni í þrjá mánuði, vaknaði á nóttunni til að kjósa og samkeppnisaðilar á markaði fóru í samstillt átak til að koma sem flestum atkvæðum í gegnum símakosningu. Magni lenti í fjórða sæti í keppninni en við heimkomu færði ráðherra honum gjöf frá ríkisstjórninni og þakkir fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Við förum yfir Rock Star brjálæðið í Eftirmálum og ræðum bæði við Magna sjálfan og Magnús Ragnarsson, manninn á bak við þetta ævintýri. Styrktaraðilar Eftirmála eru: -Nettó -Eldum Rétt -World Class -Collab - Alfreð - Intuens

Quang Le, veitingamaðurinn umsvifamikli sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson, er grunaður um peningaþvætti, mansal, skipulagða glæpastarfsemi og fleira. Hann var handtekinn árið 2024 en bíður enn dóms í málinu sem kennt er við veitingastaðinn Wok On þar sem hann var einn eigenda. Málið er talið vera umfangsmesta mansalsmál Íslandssögunnar, teygir anga sína í ótal áttir og tekur óvænta stefnu oftar en einu sinni. Sveinn Andri Sveinsson lögfræðingur Quang Le fer yfir málið með okkur. Styrktaraðilar Eftirmála eru: Nettó Eldum Rétt Collab Alfreð Intuens World Class



