#525 Ari Edwald - Oddviti Miðflokksins í Reykjavík

· Menning, Pólitík, Landið, Skemmtun

Þórarinn ræðir við Ara Edwald, fyrrum forstjóra Mjólkursamsölunnar og 365 miðla.

Ari hefur farið mikinn í atvinnulífinu en auk þess að sinna starfi forstjóra var hann áður framkvæmdarstjóri Samtaka Atvinnulífsins. En nú hyggst Ari snúa sér að stjórnmálum en hann verður oddviti Miðflokksins í Reykjavík í næstu borgarstjórnarkosningum.

Í upphafi þáttar er rætt um borgarlínuna en hann telur hugmyndafræðina á bakvið hana vera komna út í skurð og að taka þurfi í handbremsuna á því verkefni.

Að því loknu er rætt um hið svokallaða Vítalíumál þar sem Vítalía Lazareva en hún ásakaði Ara og aðra um kynferðisafbrot í heita potti árið 2020. Málið og hvort það muni koma til með að hafa áhrif á velgengni Ara í kosningum er rætt í þættinum.

Auk þessa er rætt um leikskólamál, skipulagsmál, Sjálfstæðisflokkinn og Miðflokkinn, fæðingarorlof, forræðishyggju, fánaborgina og mannréttindaráð, snjómokstur og húsnæði fyrir fíkla.

- Þarf að taka í handbremsuna á borgarlínunni?
- Mun Vítalíumálið hafa áhrif á velgengni Miðflokksins?
- Hvað vill Ari gera við Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar

Þessum spurningum er svarað hér.

Ein Pæling

Úr hlaðvarpinu

Ein Pæling

Thorarinn Hjartarson

Allir þættir

Fleiri þættir af Ein Pæling