#517 Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir - Heimavinnandi karlar, skóli án aðgreiningar og þriðja vaktin
Þórarinn ræðir við Kristínu Kolbrúnu Kolbeinsdóttur um foreldramál en hún er einmitt foreldrafræðingur.
Hún telur að þau gildi sem hafa verið hvað hæst í umræðunni undanfarin ár stríða gegn barnvænu samfélagi. Hún telur að skóli án aðgreiningar hafi boðið skipbrot og að yfirbygging menntakerfisins hafi ekki skilað betri árangri.
Hún segir skólafólk þurfa að bera ábyrgð en ekki síður foreldrar, kynin séu ólík og að þau gegni ólíkum hlutverkum í því hvernig fjölskyldusameiningin eigi að starfa.
Hún bendir á að testasterone hjá heimavinnandi karlmönnum minnkar ef það er um of en að feður séu einnig gríðarlega mikilvægir í því að koma að uppeldis- og ummönnunarhlutverki foreldra.
Hún spyr hvort að einhver hafi haft gott af því að ræða um þriðju vaktina og telur að svo sé ekki.
- Eftir hverju muna börn?
- Hjálpaði þriðja vaktin einhverjum?
- Hvaða áhrif hefur það á hormónaframleiðslu karlmanna að vera heimavinnandi feður?
Þessum spurningum er svarað hér.
Fleiri þættir af Ein Pæling
- #627 Jónas Már Torfason og Pétur Marteinsson í Beinni pælingu (Í heild á einpaeling.is)5. október 2026
- #622 Bein Pæling - Overton gluggi Flokks fólksins - 25. sept 20261. október 2026
- #625 Kristín Kolbrún og Einar Jóhannes í Beinni pælingu30. september 2026
- #621 Björn Jón Bragason og Agnar Tómas Möller í beinni pælingu29. september 2026
- #618 Brynjar Níelsson og Þórður Gunnarsson í Beinni Pælingu 16. september 202626. september 2026
- #621 Björn Jón Bragason og Agnar Tómas Möller í beinni pælingu23. september 2026





