#11 Fjölmiðlar og pólitískur rétttrúnaður (Viðtal við Jakob Bjarnar Grétarsson)
Að þessu sinni fá Kristín og Þórarinn blaðamanninn Jakob Bjarnar Grétarsson í hlaðvarpið til að ræða um fjölmiðlun og pólitískan rétttrúnað. Þættinum er skipt í þrjá hluta. Fyrst verður rætt um siðferði og skyldur blaðamanna, æsifréttir, "clickbait" og áhrif samfélagsmiðla. Í öðrum hluta ræða þau um pólitískan rétttrúnað í blaðamennsku, femínisma, #MeToo-byltinguna, fóstureyðingar, fitufordóma, akademískar stofnanir og tjáningarfrelsi. Að lokum lýsir Jakob skoðunum sínum á vanköntum fjölmiðlafrumvarpsins sem Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra lagði fram nýverið og á sérstöðu Ríkisútvarpsins, RÚV.
Þríeykinu tekst að koma höggi á nánast alla og ættu allir hlustendur að geta móðgast yfir einhverju.
Fleiri þættir af Ein Pæling
- #627 Jónas Már Torfason og Pétur Marteinsson í Beinni pælingu (Í heild á einpaeling.is)5. október 2026
- #622 Bein Pæling - Overton gluggi Flokks fólksins - 25. sept 20261. október 2026
- #625 Kristín Kolbrún og Einar Jóhannes í Beinni pælingu30. september 2026
- #621 Björn Jón Bragason og Agnar Tómas Möller í beinni pælingu29. september 2026
- #618 Brynjar Níelsson og Þórður Gunnarsson í Beinni Pælingu 16. september 202626. september 2026
- #621 Björn Jón Bragason og Agnar Tómas Möller í beinni pælingu23. september 2026





