#543 Brynjar Níelsson og Jón Gunnarsson - Vöruðu Ísraelar íslensk stjórnvöld við?
Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson og Jón Gunnarsson.
Í fyrstu er rætt um borgarstjórnarmálin en Brynjar hyggst ætla sér í framboð og telur mikilvægt að Reykjavíkurborg breyti sinni stefnu undir forystu nýs meirihluta.
Spurt er hver beri ábyrgð á eyðimerkurgöngu Sjálfstæðisflokksins og hvort að til sé sá veruleiki að flokkurinn verði hið nýja varadekk Samfylkingarinnar í borgarstjórn.
Einnig er rætt um Evrópusambandið og versandi samkeppnisstaða álfunnar og afhverju þetta sé nú komið á dagskrá en tvímenningarnir telja ástæðuna vera að ríkisstjórninni hafi ekki tekist að takast á við verðbólguna og atvinnuleysið.
Að lokum er rætt um útlendingamál og spurt hvort að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins hafi verið varaðir við því að taka á móti ákveðnum einstaklingum frá Palestínu líkt og Helgi Magnús, fyrrum vararíkissaksóknari hefur fullyrt.
- Vöruðu Ísraelar íslensk stjórnvöld við?
- Verður Sjálfstæðisflokkurinn nýja varadekk Samfylkingarinnar í borginni?
- Á hvern skrifast eyðumerkurganga Sjálfstæðisflokksins?
Fleiri þættir af Ein Pæling
- #627 Jónas Már Torfason og Pétur Marteinsson í Beinni pælingu (Í heild á einpaeling.is)5. október 2026
- #622 Bein Pæling - Overton gluggi Flokks fólksins - 25. sept 20261. október 2026
- #625 Kristín Kolbrún og Einar Jóhannes í Beinni pælingu30. september 2026
- #621 Björn Jón Bragason og Agnar Tómas Möller í beinni pælingu29. september 2026
- #618 Brynjar Níelsson og Þórður Gunnarsson í Beinni Pælingu 16. september 202626. september 2026
- #621 Björn Jón Bragason og Agnar Tómas Möller í beinni pælingu23. september 2026





