Við tökum lögin í okkar eigin hendur og hefnum okkur á norsku þjóðinni. Aron og Þorbjörg taka líka snúning á málefnum líðandi stundar og togna í bakinu.
Aldrei áður á Íslandi hefur hlaðvarp verið í gangandi formi. Við löbbum um Fossvoginn og mætum öllum þeim hættum sem hann býður upp á í beinni útsendingu. Gjöriði svo vel!
Við opnum okkur um sjúkdómana sem við erum með og köfum djúpt í hvað það þýðir að vera með alvarleg veikindi og eiga enga von... en allt á léttu nótunum samt.
Við ræðum allt frá Hjarta Hafnarfjaðar yfir í minkaveiðar. Þetta helsta sem gerðist í vikunni. Já og Gumma var MJÖG heitt þegar þetta var tekið upp. Hann á við vanda að stríða.
Hvað á að pakka með til tene? Veit það ekki, hef aldrei farið en ég get giskað. Fáum Gumma til að svara þessari spurningu og öllum öðrum sem við koma fríinu þínu. Gjöriði svo vel.