128. Þáttur - Live by the three , die by the three !
Endalínan kemur til ykkar á mánudagskvöldi eftir smá tæknilega örðugleika um helgina. Veiran er enn og aftur að trufla okkur en núna vantaði okkur stóra manninn undir körfuna þar sem Halldór Örn var staddur á sóttvarnarhóteli og tók aðeins þátt í gegnum símann - en auðvitað fórum við ekkert fram á neina frestun. Þrátt fyrir að línur séu svona aðeins að skýrast í deildinni er ennþá fullt af ósvöruðum spurningum.
- Hvaða lið sem bætti við sig á mest í land ?
- Vitum við í raun eitthvað um þessa nýju menn eftir fyrstu leikina ?
- Hvað er að fara gerast í Keflavík ?
- Njarðvík og Þór með meistaratakta !
- Geitin með eldræðu í rosalegum opnunarþátt
Þetta og auðvitað miklu meira í þéttum 90 mínútum á Endalínunni , að sjálfsögðu í boði WhiteFox , Viking Lite ( léttöl ) , Cintamani og Kef Restaurant & Diamond Suites .
Fleiri þættir af Endalínan
- 326. Þáttur - Alltaf léttir!5. júlí 2026
- 325. Þáttur - ÍSLANDSMEISTARAR!18. maí 2026
- 324. Þáttur - Við erum á leiðinni í Síkið ( Leikur 3 í lokaúrslitum)16. maí 2026
- 323. Þáttur - Stórt skref fyrir Grindavík! (Leikur 2 í lokaúrslitum) Feat. Arnór Ingi12. maí 2026
- 322. Þáttur - "Þú hittir hér helvítið þitt" (Leikur 1 í lokaúrslitum) Feat. Óli Helgi10. maí 2026
- 321. Þáttur - Næst á dagskrá: Úrslit (Oddaleikir í 4 liða úrslitum)7. maí 2026
