65. Þáttur - Út og suður ? Bara körfubolti 5 á 5.
Kæra Körfuboltafjölskylda .... hvar eigum við að byrja ? Þessi deild , þetta er náttúrulega bara ein risastór veisla. Það eru ekki margir sem voru með 6 rétta í þessari umferð en deildin er að spilast alveg rosalega skemmtilega og mögulega aldrei verið svona jöfn. Hetjuskot í Höfninni , bjargaði Tomsick starfinu ? Sabin í ham , Varnarvandræði Njarðvíkinga , Mjólkurmaðurinn vaknaði aftur , gleðin sigraði andleysið fyrir norðan og ólseigir Grindjánar skinu skærar en Stjörnumenn í KP Arena.. Hvaða sögulínur viljiði , Endalínan fer yfir þær allar í þessari umfjöllun um 7.umferðina. Allt saman í boði Kalda Bruggsmiðju og WhiteFox á PodcastStöðinni.
Fleiri þættir af Endalínan
- 326. Þáttur - Alltaf léttir!5. júlí 2026
- 325. Þáttur - ÍSLANDSMEISTARAR!18. maí 2026
- 324. Þáttur - Við erum á leiðinni í Síkið ( Leikur 3 í lokaúrslitum)16. maí 2026
- 323. Þáttur - Stórt skref fyrir Grindavík! (Leikur 2 í lokaúrslitum) Feat. Arnór Ingi12. maí 2026
- 322. Þáttur - "Þú hittir hér helvítið þitt" (Leikur 1 í lokaúrslitum) Feat. Óli Helgi10. maí 2026
- 321. Þáttur - Næst á dagskrá: Úrslit (Oddaleikir í 4 liða úrslitum)7. maí 2026
