56.Þáttur - Alvarleg Þjóðarsál
Vertu besta útgáfan af sjálfum þér ! Endalínan er mætt beint úr WhiteFox Stofunni í alveg fordæmalausu stuði á þessum dimmu tímum. Við vöðum í stóru málin í boltanum með léttu Þjóðarsálar þema. Þjálfararnir Finnur Freyr og Hrafn Kristjáns taka stöðuna á Covid pásunni og æfingaleysinu - þarf að skilgreina afreksstarfið betur ? Á að leyfa mönnum að æfa ? Mögulega mikilvægt fyrir mótið að ná inn jólatörn ? Eru 1.deildirnar minna afreksstarf ? Við förum yfir þessi mál með þeim en þjálfarar liða í Dominos deildum karla og kvenna sendu erindi til stjórnvalda á dögunum sem var slegið af borðinu. Þjóðarsálin fer síðan alla leið á Austfirði og tekur Lagarfljótsormurinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson spjallið við okkur um risastórann sigur í máli hans gegn Körfuknattleiksdeild ÍR - RISA sigur fyrir Sigga og mjög stór dómur inní íslenskt íþróttalíf sem á klárlega eftir að hafa meiri áhrif í framtíðinni. Þetta og svo miklu meira , Kalda spurningin og klefasögur í boði Kalda Bruggsmiðju & White Fox á PodcastStöðinni.
Fleiri þættir af Endalínan
- 326. Þáttur - Alltaf léttir!5. júlí 2026
- 325. Þáttur - ÍSLANDSMEISTARAR!18. maí 2026
- 324. Þáttur - Við erum á leiðinni í Síkið ( Leikur 3 í lokaúrslitum)16. maí 2026
- 323. Þáttur - Stórt skref fyrir Grindavík! (Leikur 2 í lokaúrslitum) Feat. Arnór Ingi12. maí 2026
- 322. Þáttur - "Þú hittir hér helvítið þitt" (Leikur 1 í lokaúrslitum) Feat. Óli Helgi10. maí 2026
- 321. Þáttur - Næst á dagskrá: Úrslit (Oddaleikir í 4 liða úrslitum)7. maí 2026
