47. Þáttur - Nýjir tímar !
Endalínan heldur áfram að hita upp fyrir komandi körfuboltavertíð. Í þessum þætti förum við á smá flakk , tölum um úrslitakeppni NBA og færum okkur svo yfir til Evrópu þar sem við heyrum í landsliðsmönnunum Martini Hermannssyni og Elvari Má Friðrikssyni. Félagarnir eru báðir að koma sér fyrir hjá nýjum liðum en eins og allir vita samdi Martin við stórlið Valencia á Spáni á meðan Elvar færði sig frá Svíþjóð yfir til Litháen og spilar með Siauliai. Svo tökum við auðvitað léttan rúnt yfir það sem er að gerast hérna á Íslandi , nýjustu félagaskiptin , Covid reglurnar , áframhaldandi vesen í Vesturbæ og heyrum í Sigga Þorsteins og tökum stöðuna á hans heilsu og nýliðum Hattar. Þetta allt og meira til beint úr WhiteFox Stofunni með nýjum samstarfsaðila , KALDI Bruggsmiðja. #Endalinan #WhiteFox #Kaldi #Kjotsmidjan #Netto #Podcaststodin
Fleiri þættir af Endalínan
- 326. Þáttur - Alltaf léttir!5. júlí 2026
- 325. Þáttur - ÍSLANDSMEISTARAR!18. maí 2026
- 324. Þáttur - Við erum á leiðinni í Síkið ( Leikur 3 í lokaúrslitum)16. maí 2026
- 323. Þáttur - Stórt skref fyrir Grindavík! (Leikur 2 í lokaúrslitum) Feat. Arnór Ingi12. maí 2026
- 322. Þáttur - "Þú hittir hér helvítið þitt" (Leikur 1 í lokaúrslitum) Feat. Óli Helgi10. maí 2026
- 321. Þáttur - Næst á dagskrá: Úrslit (Oddaleikir í 4 liða úrslitum)7. maí 2026
