34. Þáttur - 1 á 1 Brenton Birmingham
Endalínan er mætt og heldur áfram með 1á1 seríuna. Næsti gestur okkar er Brenton Birmingham !
Brenton ætti að vera öllum körfuboltaáhugamönnum hér á landi vel kunnugur enda spilaði hann í deildinni í 12 ár frá 1998-2010. Jón Arnór Stefánsson sagði í viðtali í vikunni að Brenton væri að hans mati besti Bandaríkjamaðurinn sem hefði spilað í deildinni hérna heima. Fullmannaðir í WhiteFox stofunnni förum við yfir ferilinn með Brenton , frá upphafsárunum í New York og hvernig ferðalagið hans endaði á Íslandi. Hann er klárlega leikmaður sem hefði getað farið á stærri vettvang í Evrópu en meiðsli settu strik í reikninginn. Hann hefur verið valinn besti leikmaður deildarinnar 3x , 2x sem Íslendingur og einu sinni sem kani en þessi ótrúlegi leikmaður lék alls 7 sinnum í lokaúrslitum af 11 tímabilum hans í deildinni hérna heima. Kæru hlustendur , Brenton Birmingham , gjörið þið svo vel !
#Endalinan #BudLight #WhiteFox
Fleiri þættir af Endalínan
- 326. Þáttur - Alltaf léttir!5. júlí 2026
- 325. Þáttur - ÍSLANDSMEISTARAR!18. maí 2026
- 324. Þáttur - Við erum á leiðinni í Síkið ( Leikur 3 í lokaúrslitum)16. maí 2026
- 323. Þáttur - Stórt skref fyrir Grindavík! (Leikur 2 í lokaúrslitum) Feat. Arnór Ingi12. maí 2026
- 322. Þáttur - "Þú hittir hér helvítið þitt" (Leikur 1 í lokaúrslitum) Feat. Óli Helgi10. maí 2026
- 321. Þáttur - Næst á dagskrá: Úrslit (Oddaleikir í 4 liða úrslitum)7. maí 2026
