Fjármálakastið

Fjármálakastið

Viðskipti

Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.

Þáttur 123 - Rætt um Bláa lónið, markaðinn og efnahagsmálin

Í þessum þætti er rætt við Sólveigu R. Gunnarsdóttur eiganda og ráðgjafa hjá STRATA Advisory. Rætt er um nýafstaðið hlutafjárútboð Bláa lónsins, markaðinn, efnahagsmálin og fleira. Vakin er athygli á vefsíðu Fjármálakastsins fjarmalakastid.substack.com ----------- Samstarfsaðilar: Bella Books Akademias Reykjavík Fintech

Þáttur 122 - Óttast að uppsagnir haldi áfram um nokkurt skeið

Gestur þáttarins er Kári Friðriksson hagfræðingur í Arion greiningu. Rætt er um efnahagsástandið um þessar mundir, vinnumarkaðinn, hugmyndir ríkisstjórnarinnar um leigubremsu og verðtrygginguna. Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech.

Þáttur 121 - Rætt um stjórnarstörf, stjórnarhætti og atvinnulífið

Gestur þáttarins er Tryggvi Pálsson en hann er einn reyndasti stjórnandi og stjórnarmaður íslensks atvinnulífs. Hann hefur því víðtæka reynslu af stefnumótun, stjórnarháttum og samskiptum stjórna og framkvæmdastjórna. Hann er einnig einn af fjölmörgum gestakennurum á námskeiðinu Viðurkenndir stjórnarmenn sem haldið er á vegum Akademias. Í þessum þætt er rætt um hlutverk stjórna í fyrirtækjum, stjórnarhætti, reynslu Tryggva af stjórnarsetu og sitthvað fleira. Þátturinn fellur undir liðinn Sviðið í Fjármálakastinu og er gefinn út í samstarfi við Akademias. Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech.

Þáttur 120 - Rætt um bankaskattinn og rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja

Gestur þáttarins þessa vikuna er Ingvar Haraldsson greininga- og samskiptastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Rætt var um fyrirhugaða hækkun á bankaskatti, rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja og ýmislegt fleira. Hægt er að bæði hlusta og/eða horfa á þáttinn á Spotify og á fjarmalakastid.substack.com. Þar má einnig gerast áskrifandi af fréttabréfi Fjármálakastsins. Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech.

Þáttur 119 - Viðtal við framkvæmdastjóra viðskipta hjá Nasdaq Iceland

Gestur þáttarins þessa vikuna er Finnbogi Rafn Jónsson framkvæmdastjóri viðskipta hjá Nasdaq Iceland. Í þættinum er rætt um innleiðingu miðlægs mótaðila hjá Nasdaq Iceland sem tilkynnt var í síðustu viku, hvernig horfurnar eru fyrir nýskráningar í Kauphöll á næstunni, stöðuna á hlutabréfamarkaði og tækniframfarir hjá Nasdaq. ------------- Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech

Þáttur 118 - Reynslumikill fjármálastjóri mætir í settið

Gestur vikunnar í Fjármálakastinu er Ólafur Þór Jóhannesson fjármálastjóri ÞG verks og systurfélagsins Arcusar ehf, eignarhaldsfélags sem eru í fullri eigu Þorvaldar Gissurarsonar. Ólafur er reynslumikill fjármálastjóri en hann hefur starfað sem fjármálastjóri, forstjóri, endurskoðandi, kennari við Háskólann í Reykjavík, stjórnarmaður og ráðgjafi í ýmsum atvinnugreinum. Hægt er að bæði hlusta og/eða horfa á þáttinn á Spotify og hér að ofan. Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech

Þáttur 117 - Umræður um frumútboð Anthropic, rafmyntamarkaði og efnahagsmálin

Í þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson framkvæmdastjóra Visku sjóða. Rætt var um fyrirhugað frumútboð hjá gervigreindarfyrirtækinu Anthropic, það helsta sem er að eiga sér stað á rafmyntamörkuðum þessa dagana, horfurnar í efnahagslífinu og sitthvað fleira. ------------------- Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech

Þáttur 116 - Viðtal við Hönnu Kristínu um gervigreind í fyrirtækjarekstri

Í þessum þætti er rætt við Hönnu Kristínu Skaftadóttur, doktor í gervigreind og sjálfvirknivæðingu ferla í viðskiptum og fagstjóra viðskiptagreindar við Háskólann á Bifröst. Hún er einnig hópstjóri gervigreindarhóps Reykjavík Fintech. Í þessum þætti er rætt um þau tækifæri sem felast í nýtingu gevigreindar í rekstri, hvar Ísland stendur á því sviði og einnig hópastarfið hjá Reykjavík Fintech. Umræddur þáttur er undir liðnum Sviðið en það er vettvangur þar sem samstarfsaðilar Fjármálakastsins fá aðgang að sviðsljósinu. --------------------- Samstarfsaðilar: Bella Books Reykjavik Fintech Akademias

Þáttur 115 - Viðtal við Ernu Björgu Sverrisdóttur aðalhagfræðing Arion banka

Gestur þáttarins er Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka. Farið var yfir efnahagshorfur og stýrivaxtahækkunina síðastliðinn miðvikudag. Samstarfsaðilar: Reykjavík Fintech Akademias Bella Books

Þáttur 114 - Viðtal við Ragnar Árnason prófessor í hagfræði

Í þessum þætti er rætt við Ragnar Árnason prófessor emeritus í hagfræði við Háskóla Íslands. Rætt er um áhrif þess á sjávarútveginn ef Ísland myndi ganga í ESB, áhrif aukinnar skattlagningar stjórnvalda á sjávarútveginn, gang greinarinnar, ETS kerfið og fleira. ------------ Samstarfsaðilar Reykjavík Fintech Bella Books Akademias

Þér gæti líka líkað...