Arabíska barnæskuguðspjallið
Í þessum þætti les umsjónarmaður jólaguðspjallið en þó ekki hið alkunna jólaguðspjall Lúkasar heldur frásögn af fæðingu og fyrstu dögum Jesú sem er að finna í hinu svonefnda Arabíska barnæskuguðspjalli, sem er - þrátt fyrir nafnið - kristið verk frá því á 5. öld. Frásögnin er ítarlegri en hjá Lúkasi og þarna kemur fram að Jesúbarnið var strax við fæðingu farið að gera kraftaverk og lækna margvíslega sjúkdóma, allt frá holdsveiki til getuleysis, og rak út illa anda í stórum stíl.
Fleiri þættir af Frjálsar hendur
- Jón Steingrímsson og kolakláfar4. október 2026
- Jón Steingrímsson og kolakláfar4. október 2026
- Sögur Chekhovs 3: Lyfsalafrúin, Það var þá hún, Rökkur, Loforð og efnir27. september 2026
- Sögur Chekhovs 3: Lyfsalafrúin, Það var þá hún, Rökkur, Loforð og efnir27. september 2026
- Sjókonan Þorbjörg Kolka20. september 2026
- Sjókonan Þorbjörg Kolka20. september 2026