#44 - Ásgeir Örn og Gunni Magg: Vinnum til verðlauna á næstu árum
Handboltagoðsagnirnar Ásgeir Örn Hallgrímsson og Gunnar Magnússon spáðu í spilin fyrir komandi Evrópumót sem hefst í Þýskalandi í dag. Ásgeir Örn lék 247 A-landsleiki og vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikum og bronsverðlauna á EM með liðinu en hann stýrir Haukum í dag. Gunnar var aðstoðarþjálfari liðsins sem vann til silfur- og bronsverðlauna, ásamt því að hafa stýrt liðinu sjálfur á síðasta ári en hann er þjálfari Aftureldingar í dag.
Fleiri þættir af Fyrsta sætið
- #81 - Margrét Lára: Hjálpaði mér að loka ferlinum17. desember 2025
- #80 - Kristófer Acox: Síðast þegar ég svaraði var mér hent úr landsliðinu3. október 2025
- #79 - Steini Halldórs: Íhugaði það alvarlega að kalla þetta gott25. september 2025
- #78 - Fyrsta sætið: Fær ekkert jólakort frá landsliðsþjálfaranum9. júlí 2025
- #77 - Fyrsta sætið: Hótelstjórinn áfengisdauður öll kvöld5. júlí 2025
- #76 - Fyrsta sætið: Íslendingar stálu ketti í Thun3. júlí 2025
