#16 - Hugbúnaðarlausnir eru of dýrar. Hvernig á að laga það?
Hugbúnaðargerð getur verið dýr, flókin og tímafrek. En hvað gerist þegar lítil teymi geta skyndilega afkastað jafn miklu og heilu deildirnar hjá stóru tæknifyrirtækjunum?
Í þessum þætti ræðir Pétur Már Sigurðsson við þá Viktor Margeirsson og Gunnar Kolbeinsson, stofnendur Test 13. Þeir settu LinkedIn á hliðina nýverið þegar þeir buðu öllum sem höfðu fengið tilboð frá stóru hugbúnaðarhúsunum (eins og Advania eða Origo) að vinna sama verkefni með 60% afslætti.
Í þættinum er farið yfir:
Hvernig þeir nýta Replit og gervigreind til að umbylta hugbúnaðarþróun.
„Að brjóta LinkedIn“: Viðbrögðin við tilboðinu um 60% afslátt.
Jevons Paradox: Af hverju ódýrari kóði þýðir í raun meiri atvinna og fleiri tækifæri.
Nautgripabónda í Kenía sem smíðar hugbúnað á kvöldin.
Hvernig „Vibe Coding“ er að lækka þröskuldinn svo hver sem er getur orðið forritari.
Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.
Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri, kíktu þá á námskeiðin okkar:👉 javelin.is/courses
Ef þú vilt vita hvar þitt fyrirtæki er statt í gervigreindarvegferðinni taktu prófið:
👉 javelin.is/ai-readiness
Klipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson
Fleiri þættir af Gervigreind
- #19 - Fréttaþáttur: Mythos, Hermes og reikniaflsstríðið5. maí 2026
- #18 - Fréttaþáttur: Claude vs OpenClaw, TurboQuant, Autoresearch og fleira31. mars 2026
- #17 - Fréttaþáttur: Gervigreindir vinna saman og Elon Musk í sókn17. febrúar 2026
- #15 - Vibe coding og vibe working21. janúar 2026
- #14 - Gervigreind sem rak fyrirtæki í þrot12. janúar 2026
- # 13 - Málfríður Anna: Nám á tímum gervigreindar5. janúar 2026

