54. Coca-Cola, gervigreind og framtíð markaðssetningar - Atli Sigurður
Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is.
Af hverju þarf að auglýsa Coca-Cola þegar nánast allir þekkja vörumerkið? Og hvað gerist þegar neytendur fara að spyrja gervigreindina hvað þeir eigi að kaupa?
Gestur þáttarins er Atli Sigurður Kristjánsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Coca-Cola á Íslandi. Hann veitir innsýn í markaðsstarfið á bak við þekkt vörumerki og segir frá því hvernig hann notar gervigreind til að prófa hugmyndir, vinna með gögn og undirbúa kynningar.
Við ræðum um umdeildu Coca-Cola jólaauglýsinguna sem var unnin með gervigreind, endurkomu súperdósarinnar og hvernig vörumerki tengjast tónlist, íþróttum og daglegum venjum okkar. Einnig veltum við fyrir okkur hvort ekta efni og mannlegt innsæi verði enn verðmætari þegar allir geta framleitt auglýsingar á örskotsstundu.
Atli deilir jafnframt því hvernig hann myndi nálgast uppbyggingu nýs drykkjarvörumerkis með takmarkað fjármagn og aðgang að gervigreind. Hvernig finnurðu þörf á markaðnum, mótar skýra stefnu og tryggir að gervigreindin finni fyrirtækið þitt?
Fleiri þættir af Gervigreindarklúbburinn
- 59. Hvað verður um störfin okkar? – Kristján hjá 50skills17. nóvember 2026
- 58. Frá spjallmenni í persónulegan aðstoðarmann - Magnús Sigurbjörnsson10. nóvember 2026
- 57. PlayStation, GTA og framtíð gervigreindar – Óli Jóels úr Game Tíví3. nóvember 2026
- 56. Er verið að gera mig óþarfa? Gervigreind og mannauðsmál með Tékk-Inn29. október 2026
- 55. Bergur Ebbi – Erum við að ímynda okkur ranga framtíð?27. október 2026
- 53. Getur gervigreind breytt íslenskum fótbolta? - KSÍ13. október 2026






