#14 Sigurður Rúnar Karlsson
„Ég held að framtíð Grindavíkur sé björt – jafnvel bjartari en áður.“
Í þessum þætti af Góðan daginn, Grindvíkingar ræðum við við Sigurð Rúnar Karlsson, forstöðumann þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar – oft kallaðan Sigga Garðhúsum. Sigurður var fyrsti maðurinn sem snéri aftur í bæinn eftir rýmingu þann 11. nóvember 2023. Þar tók hann fyrstu skrefin í viðgerðum og uppbyggingu sem hann hefur stýrt af festu og jákvæðni síðan.
Hann segir frá æskuárunum í Garðhúsum, áhrifum hamfaranna á sitt eigið heimili og þeirri von sem hann ber í brjósti fyrir framtíð bæjarins. Þátturinn fjallar um bjartsýni, þrautsegju og trú á samfélagið – og sýnir okkur hvernig verkvit og vilji geta orðið burðarás í endurreisn.
Fleiri þættir af Góðan daginn Grindvíkingur
- #17 Guðrún Pétursdóttir og Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir13. janúar 2026
- #16 Guðfinna Magnúsdóttir11. september 2025
- #15 Otti Rafn Sigmarsson16. apríl 2025
- #13 Jóhanna Lilja Birgisdóttir, framkvæmdastýra þjónustuteymis Grindavíkinga2. apríl 2025
- #12 Kjartan Friðrik Adólfsson27. mars 2025
- #11 Fasteignafélagið Þórkatla17. mars 2025






