Grjótkastið

Björn Ingi Hrafnsson

PólitíkSamfélagiðMálefniLandið

Grjótkastið. Fréttaskýringar, pistlar og viðtöl um málefni líðandi stundar. Dagbókarbrot.

Skuggabankastjórnin okt/26

Skuggabankastjórnin greinir stöðu og horfur fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans í október 2026. Þórður Pálsson er mættur að venju og Konráð S. Guðjónsson situr fundinn að þessu sinni í fjarveru Sigurðar Hannessonar. Að venju er margt að ræða. Staða á vinnumarkaði, gengi krónunnar, umrót á alþjóðamörkuðum, fjárlögin, atvinnuleysið og blessuð verðbólgan, svo eitthvað sé nefnt. Skylduhlustun fyrir þá sem vilja vita hvað er framundan.

Hvað verður um Icelandair? Og niðursveiflan framundan

Það var ekki töluð vitleysan þegar Hermann Guðmundsson, Hörður Ægisson og Sigurður Már Jónsson settust á rökstóla í Grjótkastinu um stöðu og horfur í íslensku hagkerfi. Mjög djúp niðursveifla virðist í vændum, en þó er ofsagt að allt sé að fara í skrúfuna. Miklu skiptir hvað verður um Icelandair á næstu vikum. Af hverju styrkist krónan enn? Hvað gerist þegar atvinnuleysi rýkur upp? Er ríkisstjórnin með augun á boltanum eða einhverju allt öðru?

Kreppa í kortunum

Kannski ekki skemmtiefni, en samt skylduhlustun. Agnar Tómas Möller og Þorbjörn Atli Sveinsson rýna í fjárlagafrumvarpið og möguleg áhrif þess, en líka í ískyggilega þróun á ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa sem margir telja vísbendingu um yfirvofandi alvarlega kreppu á Vesturlöndum og víðar.

Á núna að troða okkur bakdyramegin í ESB?

Frosti Logason og Hjörtur J. Guðmundsson ræða viðbrögðin við NEI-inu, ummæli stækkunarstjóra ESB, stöðu ríkisstjórnarinnar og utanríkisráðherrans sérstaklega, alla þá sem sáu feitt djobb í útlöndum í hillingum og margt fleira.

Allt undir fyrir Þorgerði Katrínu og Viðreisn

Andrea Sigurðardóttir þingfréttamaður Morgunblaðsins spáir í spilin fyrir komandi þjóðaratkvæði; Þorgerður Katrín leggur allt undir að já-ið verði niðurstaðan, Flokkur fólksins er í felum, Katrín Jakobsdóttir tekur á sig gusur fyrir að fylgja sannfæringu sinni og er ríkisstjórnin öðrum þræði að fá á sig mælingu á laugardaginn?

Landsbyggðin skeptískari á ESB-aðild

Dr. Birgir Guðmundsson prófessor emeritus um mismunandi viðhorf íbúa landsbyggðarinnar gagnvart aðild að ESB og íbúa höfuðborgarsvæðisins, stöðu málsins innan stjórnmálaflokkanna, þátt fjölmiðla í aðdraganda þjóðaratkvæðis og margt fleira.

ESB vill Ísland inn til að þrýsta á Noreg

Fáir þekkja innviði Evrópusambandsins betur en Dr. Gunnar Pálsson sem starfaði í utanríkisþjónustu Íslands í fjörtíu ár og var meðal annars sendiherra hjá NATO, Sameinuðu þjóðunum og Evrópusambandinu sjálfu. Hann veitir okkur einstaka innsýn í það valdatafl sem er að baki áhuga ESB á aðild Íslands og hvernig farið er með umsóknir ríkja og aðildarviðræður. Skylduhlustun.

Viðreisn hefur hina stjórnarflokkana að fíflum

Símtal dagsins er við Guðmund Fetram Sigurjónsson athafnamann á Ísafirði um komandi þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við ESB.

Hefur ESB-atkvæðagreiðslan áhrif á Peningastefnunefnd?

Skuggabankastjórnin kemur saman til að ræða stöðu og horfur, enda vaxtaákvörðun framundan í vikunni. Hefur þjóðaratkvæðagreiðslan um ESB áhrif á þá sem sitja í peningastefnunefnd? Verða viðfangsefnin hin sömu í haust hvort sem þjóðin segir nei eða já? Ummæli forsætisráðherra um atvinnulífið og verðbólguna koma við sögu, sem og fjárlög næsta árs sem eiga að verða hallalaus. Þýðir það alvöru hagræðingu eða enn frekari skattahækkanir?

Vaxtaákvörðun og úrslit kosninga

Skuggabankastjórn kemur saman að loknum sveitarstjórnarkosningum og rýnir í úrslitin og ræðir ákvörðun peningastefnunefndar sem kynnt verður seinna í vikunni. Sigurður Hannesson og Þórður Pálsson liggja ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn.

Þér gæti líka líkað...