#26 Unnar Helgason styrktarþjálfari - Ofþjálfun, endurheimt, Crossfit.
í þessum þætti tala ég við Unnar Helgason er styrktar og þrekþjálfari fyrir MMA og Crossfit sem og sótsvartan almúgann.
Hann er yfirstyrktarþjálfari hjá keppnishópum hjá Mjölni
Hann þjálfar m.a Gunnar Nelson bardagakappa, Aron Einar landsliðsmann í fótbolta og Eygló Ósk sunddrottningu
Unnar hefur stofnað þrjár Crossfit stöðvar: Crossfit Hamar, Crossfit Akureyri og Crossfit XY.
Hann hefur jafnframt þjálfað í Crossfit Reykjavík.
Unnar er Hafnfirðingur í húð og hár en stundar nú nám í osteopatíu í Gautaborg.
Unnar er algjör draumur í dós, skemmtilegur, hláturmildur, hafsjór af fróðleik og með þægilega nærveru
Vonandi hefur þú hlustandi góður jafn gaman að þessum þætti og ég.
Þú finnur Unnar á Instagram undir @unnarh
Þátturinn er í boði
Lífsalt @arcticseaminerals
NOW á Íslandi @nowfoodsiceland
Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég spjalla sjálf eða fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi.
www.ragganagli.com inniheldur greinar um heilbrigt samband við mat, æfingar og líkamann
ragganagli79@gmail.com ef þig vantar sálfræðiaðstoð eða sálfræðilega mataræðisráðgjöf
Facebook/RaggaNagli
Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’
Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur. www.29linur.com @29linur
Afsláttarkóðar:
Veganbúðin: ragganagli = 15%
Hverslun.is ragganagli20 = 20%
www.goodgoodbrand.net: ragganagli20
24iceland: ragganagli20
Fleiri þættir af Heilsuvarpid
- #133 Narsissmi: Klækjabrögð og hvernig þú getur brugðist við þeim.4. september 2026
- Bætingar í ræktinni. Hvenær á ég að þyngja?17. ágúst 2026
- #131 Sumarfríið í Albaníu11. ágúst 2026
- #130 Kristín Berta heilsunuddari18. maí 2026
- #128 Stopp í fitutapi - mögulegar lausnir án þess að borða minna3. maí 2026
- #127 Magnesíum15. apríl 2026

