#18 EvertVíglundsson - Crossfit eftir fertugt, líkamsrækt og heilsa
Gestur þáttarins er Evert Víglundsson, crossfit þjálfari og eigandi CrossFit Reykjavík.
Evert þarf vart að kynna fyrir neinum enda er hann líklega andlit Crossfit á Íslandi og hreystin holdi klædd.
Hann stofnaði fyrstu Crossfit stöðina á Íslandi og er því hokinn af reynslu í öllu sem viðkemur líkamsrækt, hreysti og Crossfit enda stundað íþróttir frá blautu barnsbeini á Húsavík og á fullorðinsárum í borg óttans.
Hann hefur þjálfað þúsundir landsmanna og er með skemmtilega og öðruvísi nálgun á þjálfun en margir aðrir.
Allt frá dansi og hann segir skemmtilega sögu af því… sem og skíðakennslu og önnur skemmtileg saga fylgir allt upp í Navy Seal æfingar í Ammeríku.
Við hefðum getað tekið upp fimm tíma podcast enda bæði á sömu bylgjulengd þegar kemur að mikilvægi þess að hreyfa sig fyrir bætt lífsgæði og heilsu.
Takk fyrir að hlusa á Heilsuvarpið.
Gjöriði svo vel, hér er ég að tala við Evert Víglundsson.
www.crossfitreykjavik.is
Instagram: @evvig1972 @crossfitreykjavik
Facebook: CrossfitReykjavik
Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég spjalla sjálf eða fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi.
www.ragganagli.com inniheldur greinar um heilbrigt samband við mat, æfingar og líkamann
ragganagli79@gmail.com ef þig vantar sálfræðiaðstoð eða sálfræðilega mataræðisráðgjöf
Facebook/RaggaNagli
Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’
Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur. www.29linur.com @29linur
Afsláttarkóðar:
Pulseroll nuddbyssan: @pulserolliceland: ragganagli15 = 15%
Veganbúðin: ragganagli = 15%
Under Armour: ragganagli = 20%
Hverslun.is ragganagli20 = 20%
www.goodgoodbrand.net: ragganagli20
24iceland: ragganagli20
Fleiri þættir af Heilsuvarpid
- #133 Narsissmi: Klækjabrögð og hvernig þú getur brugðist við þeim.4. september 2026
- Bætingar í ræktinni. Hvenær á ég að þyngja?17. ágúst 2026
- #131 Sumarfríið í Albaníu11. ágúst 2026
- #130 Kristín Berta heilsunuddari18. maí 2026
- #128 Stopp í fitutapi - mögulegar lausnir án þess að borða minna3. maí 2026
- #127 Magnesíum15. apríl 2026

