#8-Gummi Kírópraktór- stoðkerfið, Crossfit, rassinn og hreyfiteygjur
Gummi Kíró eða Guðmundur Birkir Pálmason er maður með marga titla á ferilskránni. Harðkjarnaður Hornfirðingur, fyrrum vaxtarræktarkappi og vann sem einkaþjálfari í rúman áratug áður en hann menntaði sig í kírópraktík í Svíþjóð.
Gummi stundar Crossfit af kappi og því eldri en tvævetur í sölum ræktar og með mikla þekkingu á líkamanum, hreyfingu og meiðslum.
Hann stofnaði kírópraktorstofu í Stokkhólmi eftir nám en flutti svo aftur á fósturjörðina og opnaði Kírópraktorstofu Reykjavíkur í Faxafeni þar sem hann beitir töfrum sínum.
Hann á einnig Kiropraktik Stholm í Stokkhólmi, og fer reglulega þangað að kenna og starfa.
Hann er líka listmálari undir listamannanafninu NORR og málar stórkostleg málverk sem prýða marga stofuna innanlands sem utan.
Sannarlega margir hæfileikar sem lúra í þessum massaða skrokki.
Í þessum þætti bergjum við af ótæmandi brunni visku hans um líkamann, liðleika, hreyfiteygjur stoðkerfið, algeng meiðsli í Crossfit, og komumst að því hvað kírópraktórar gera eiginlega í vinnunni.
Hann deilir með okkur sótsvörtum almúganum hvað við getum gert til að styrkja og auka liðleika í gegnum hreyfiteygjur fyrir mjaðmir, bak, axlir og rass til að minnka líkur á meiðslum.
Instagram
@gummikiro @kirorvk
facebook.com/norrart
www.kirorvk.is
Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’
Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur.
Afsláttarkóðar:
Veganbúðin: ragganagli
Under Armour: ragganagli
Hverslun.is ragganagli20
www.goodgoodbrand.net: ragganagli20
24iceland: ragganagli20
Fleiri þættir af Heilsuvarpid
- #133 Narsissmi: Klækjabrögð og hvernig þú getur brugðist við þeim.4. september 2026
- Bætingar í ræktinni. Hvenær á ég að þyngja?17. ágúst 2026
- #131 Sumarfríið í Albaníu11. ágúst 2026
- #130 Kristín Berta heilsunuddari18. maí 2026
- #128 Stopp í fitutapi - mögulegar lausnir án þess að borða minna3. maí 2026
- #127 Magnesíum15. apríl 2026

